Fasteignaleitin
Skráð 27. maí 2026

Unnarbraut 19

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
320.2 m2
10 Herb.
7 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
295.000.000 kr.
Fermetraverð
921.299 kr./m2
Fasteignamat
239.850.000 kr.
Brunabótamat
154.500.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2068653
Landnúmer
117745
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suð-vestur
Upphitun
Ofnakerfi / hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Erling Proppé lgf. & REMAX kynna: Einstaklega fallegt 320,2 m² einbýlishús á tveimur hæðum, byggt 1975, með stórkostlegu útsýni á frábærri tæplega 1000m² lóð sunnanmegin á Seltjarnarnesi. Eignin samanstendur af rúmgóðri aðalíbúð á tveimur hæðum ásamt 3ja herbergja aukaíbúð með aukinni lofthæð á neðri hæð með sérinngangi, sér aðkomu og bílastæði. Íbúðirnar bjóða upp á samtals fimm - sex svefnherbergi sem mætti þó fjölga auðveldlega, þrjú baðherbergi og góða fjölskylduaðstöðu. Aðalíbúðin státar af mikilli lofthæð, björtu alrými og suð-vestur svölum með einstöku sjávarútsýni.

Húsið hefur fengið gott viðhald og endurbætur í tíð seljanda, hægt er að nálgast viðhaldssögu eigenda hjá fasteignasala, Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is


Neðri hæð – Aðalíbúð
Anddyri: Rúmgott anddyri með fallegum flísum á gólfi og góðum fataskápum þar sem gengið er inn í bílskúr. Einnig er góð geymsla undir stiga. 
Verönd: Falleg verönd er fyrir framan hús sem snýr í suður, vestur og austur þar sem hægt er að njóta sólar allan daginn. 
Forstofuherbergi: Rúmgott herbergi staðsett inn af anddyri, með parketi á gólfi og aðgengi inn í "bílskúr/vinnustofu". Samanlögð stærð forstofuherbergis/vinnustofu og bílskúrs er 76,8m²
Bílskúr/vinnustofa: Rúmgott og bjart rými, búið er að skipta út bílskúrshurðum fyrir stóra glugga og tvöfalda hurð, gengið út á pall austan megin við húsið. Þessi rými mæti útbúa sem aðra íbúð, herbergi, fjölskyldurými, golfhermi, líkamsrækt osfrv.
Aðkoma: Fallegt og rúmgott hellulagt bílaplan, búið er að leggja út fyrir hleðslustöð.
Geymsluskúr: Á bakvið hús er góður ca 10m² geymsluskúr með rafmagni, byggður 2022. 

Efri hæð – Aðalíbúð
Aðalrými aðalíbúðarinnar er með opnu stóru eldhúsi, stofum, svefnálmu, þvottahúsi, tveimur baðherbergjum og óhindruðu útsýni til sjávar.
Hol: Parketlagður stigi liggur upp á efrihæð og leiðir í allar vistaverur hæðarinnar.
Eldhús: Falleg hvít innrétting frá HTH, stæði fyrir tvöfaldan/franskan ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, span helluborði, ofn og combiofn. Stórir gluggar snúa í suð-vestur og bjóða upp á stórbrotið útsýni til sjávar, Álftanes, Keilis, Reykjanes og Snæfellsjökuls. 
Stofa / borðstofa / setustofa: Sérlega bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Stórir gluggar snúa til sjávar og fjalla. Útgengt er á góðar flísalagðar svalir sem snúa í suður. Einnig er setustofa í rýminu sem skv. upprunalegu skipulagi var skrifstofa/Herbergi VI 
Herbergi I / sjónvarpskrókur: Eitt svefnherbergi er staðsett inn af stofu, með parketi á gólfi.
Gestasalerni: Flísalögð sturta með glerskilrúmi, upphengdu salerni, fallegri innréttingu með frístandandi steinvask og handklæðaofni.  Flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Gangur með parketi á gólfi sem leiðir að svefnherbergjum.
Hol: Á milli hjónaherbergis og eldhús er hol með útgengi út á svalir - hér væri mögulega hægt að stækka hjónaherbergi enn frekar, gera rúmgott fataherbergi með aðgengi út á svalir. 
Herbergi II: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.
Herbergi III / Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með útsýni til sjávar, góðum skápum við hjónarúm og í enda á herbergi. Möguleiki á að stækka hjónaherbergi og hafa útgengi á svalirnar.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta með baðkari og sturtugleri, hvítri innréttingu, upphengdu salerni og glugga.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðri innréttingu og vinnuplássi. Flísum á gólfi, handklæðofn og góðum glugga.

Aukaíbúð – Neðri hæð
Sjálfstæð 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á sér fastanúmeri. Íbúðin er með sérinngangi og bílastæði á neðri hæð. Núverandi eigendur opnuðu inn í íbúðina úr forstofu aðalíbúðar og hafa nýtt hana sjálf. Hægt er að loka aftur eða setja hurð. 
Anddyri: Sérinngangur á norð-austan hlið hússins með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Hol: Hol með parketi á gólfi sem leiðir inn að salerni og inngangi inn í aðalíbúð.
Stofa: Opið og bjart rými með parketi á gólfi. Stofan státar af stórum gluggum og næst fallegt útsýni út um glugga sem settir voru á skjólveggina á veröndinni.
Eldhús: Þar sem stóri bókaskápurinn er í stofunni er hugsað fyrir eldhúsi, allar lagnir eru til staðar til að setja upp eldhús, þar er í dag uppsettur vaskur. 
Baðherbergi: Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu, glugga, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu. Einnig eru tengi og lagnir til staðar fyrir þvottavél og þurrkara. 

Um er að ræða fallega, rúmgóða, bjarta aukaíbúð með góðri lofthæð og stórum gluggum. Sérinngangi á hinni hlið hússins og sérbílastæði.

Lóðin
Lóðin er stór, tæplega 1000m2 og einstaklega falleg. Hún samanstendur af tvennum veröndum, stórri hellulögðu bílaplani fyrir framan og aftan hús. Fallegur garður með m.a. sérsmíðuðum sólbekkjum með blómakeri á milli og þrem grænmetiskössum. Góðum geymsluskúr með rafmagni. 

Niðurlag
Fallegt einbýlishús með aukaíbúð staðsett á eftirsóttum stað á suðurströnd Seltjarnarnes með stórbrotnu útsýni til sjávar og góðum útisvæðum. Nálægð við náttúru og útivistarsvæði ásamt allri helstu þjónustu. 

Til gamans má nefna að fyrir liggja gamlar samþykktar teikningar af stækkun á húsinu í 399.3 m² síðan 2005 og einnig fyrir 467.1 m² síðan 2007. Það eru því forsendur fyrir möguleikum til stækkunar þó að sækja þurfi aftur um vegna aldurs umsókna. 

Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. 

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/01/2026158.800.000 kr.63.630.000 kr.320.2 m2198.719 kr.Nei
09/04/202187.850.000 kr.154.900.000 kr.320.2 m2483.760 kr.Nei
22/11/201248.250.000 kr.60.000.000 kr.320.2 m2187.382 kr.Nei
03/04/200737.150.000 kr.70.000.000 kr.320.2 m2218.613 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1975
83.3 m2
Fasteignanúmer
2068651
Byggingarefni
steypa
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
64.650.000 kr.
Lóðarmat
16.400.000 kr.
Fasteignamat samtals
81.050.000 kr.
Brunabótamat
43.100.000 kr.

Myndir (72)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurbyggð 7
Bílskúr
Skoða eignina Suðurbyggð 7
Suðurbyggð 7
600 Akureyri
254.4 m2
Einbýlishús
724
570 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 49
Bílskúr
Skoða eignina Drekavellir 49
Drekavellir 49
221 Hafnarfjörður
264.5 m2
Einbýlishús
75
642 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Virkisás 2
Bílskúr
Skoða eignina Virkisás 2
Virkisás 2
221 Hafnarfjörður
210.2 m2
Einbýlishús
523
880 þ.kr./m2
185.000.000 kr.
Skoða eignina Fagrihjalli 3
Skoða eignina Fagrihjalli 3
Fagrihjalli 3
200 Kópavogur
233.2 m2
Einbýlishús
434
771 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin