Fasteignaleitin
Skráð 27. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Ciudad Quesada

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
153 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
101.300.000 kr.
Fermetraverð
662.092 kr./m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
106270426
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar svalir
Upphitun
Kæling/hiti og gólfhiti í öllu húsinu
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Í HJARTA CIUDAD QUESADA* *EINKASUNDLAUG* *4 HERBERGI* 3 BAÐHERBERGI* *ÞAKSVALIR*


Þetta glæsilega einbýlishús sem snýr í suður, er byggt árið 2020 og er sem nýtt. Það er fallega hannað, með rúmgóðar vistarverur og staðsett á eftirsóttum stað miðsvæðis í Ciudad Quesada. Hér sameinast nútímalegur arkitektúr og þægindi, sem gerir eignina fullkomna fyrir daglegt líf fjölskyldunnar, hvort sem er til fastrar búsetu eða til að njóta orlofsins við lúxus aðstæður.

Nánari upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.


Lýsing eignar:
Eigning skiptist á þrjár hæðir og hefur verið hönnuð með það að markmiði að hámarka birtu, þægindi og notagildi. Á aðalhæðinni er bjart opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi sem skapar hlýlegt og rúmgott andrúmsloft. Stórir gluggar snúa út að garði með einkasundlaug og tengja þannig innra og ytra rými á fallegan hátt. Sér þvottahús/geymsla eykur þægindi og á þessari hæð er einnig fallegt gestaherbergi og fullbúið baðherbergi.

Á annarri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, hvort með sínu eigin baðherbergi. Annað herbergið er með fataherbergi (walk-in closet), en hitt opnast út á einkasvalir með útsýni yfir garðinn og sundlaugarsvæðið.

Á efstu hæð er fjórða herbergið sem hentar vel sem heimaskrifstofa, vinnustofa eða aukagestaherbergi. Þaðan eru tvær rúmgóðar svalir með víðáttumiklu útsýni yfir Ciudad Quesada, nærliggjandi sveitir, saltvötnin og jafnvel glittir í Miðjarðarhafið.

Útisvæðið er hannað með lágmarksviðhald fyrir augum og notkun allt árið um kring. Þar má koma sér fyrir í hinu ýmsu krókum og kimum og njóta ljúffengra máltíða, slaka á, sóla sig og kæla sig í prívat saltvatnssundlaug. Lóðin er fullgirt og býður upp á öruggt bílastæði innan lóðar.

Staðsett á eftirsóttum stað í rólegri botnlangagötu, aðeins steinsnar frá hjarta Ciudad Quesada. Þjónusta á borð við matvöruverslanir, kaffihús, veitingastaði, apótek og verslanir er í aðeins um 300 metra göngufæri.

Ciudad Quesada er líflegt og rótgróið samfélag sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu eins og golf á La Marquesa, keilu, minigolf, vatnagarð, hjólaleiðir og fallegar gönguleiðir í náttúrunni. Norskir og breskir skólar eru staðsettir á svæðinu sem gerir það enn meira aðlaðandi fyrir fjölskyldur. Þessi miðsvæðis en jafnframt friðsæla staðsetning gerir eignina einstaklega hentuga fyrir heilsársbúsetu, til að njóta lúxus orlofs eða verðmæta fjárfestingu.

Verð: 699.000 evrur (ISK101.300.000 miðað við gengi 1 evra=145 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.

Helstu eiginleikar:
Nútímalegt einbýli (byggt 2020)
4 svefnherbergi og 3 glæsileg baðherbergi
153 m² húsnæði á 533 m² einkalóð
Prívat L-laga saltvatnssundlaug (u.þ.b. 7 x 4 metrar)
Öruggt bílastæði á afgirtri lóð
Opið eldhús með vönduðum tækjum
Suður garður með sól allan daginn
Þaksvalir með víðáttumiklu útsýni
Þvottahús / geymsla
Loftkæling (hiti og kæling)
Gólfhiti á baðherbergjum
Sólarsellur
Orkuflokkun: B
Göngufæri við verslanir, kaffihús og þjónustu (u.þ.b. 300 m)
Tvöfalt gler í gluggum fyrir betri orkunýtingu
Saltvatnslaug sem auðvelt er að viðhalda
Margar verandir fyrir samveru og afslöppun
Þaksvalir með víðáttumiklu útsýni og sjávarsýn að hluta
Nútímalegur frágangur og hágæða gólfefni
Eign sem snýr í suður sem hámarkar náttúrulega birtu

Strendur Guardamar del Segura: u.þ.b. 9 km (10 mínútur); Alicante flugvöllur: u.þ.b. 38 km (35 mínútur); La Marquesa Golf: u.þ.b. 4 km; Verslanir og þjónusta: u.þ.b. 300 m

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, útsýni, air con, 
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106270426

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 26 - Íb. 305
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Áshamar 26 - Íb. 305
221 Hafnarfjörður
107 m2
Fjölbýlishús
413
793 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 - Íb. 405
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Áshamar 26 - Íb. 405
221 Hafnarfjörður
107.6 m2
Fjölbýlishús
413
789 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 - íb. 105
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Áshamar 24 - íb. 105
221 Hafnarfjörður
108.3 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 22 - Íb. 405
Bílastæði
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:30
Áshamar 22 - Íb. 405
221 Hafnarfjörður
110.5 m2
Fjölbýlishús
423
768 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin