Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

Eyrar 11 og 13

SumarhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
73.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
682.627 kr./m2
Fasteignamat
44.050.000 kr.
Brunabótamat
42.350.000 kr.
Mynd af Steingrímur Benediktsson
Steingrímur Benediktsson
Löggiltur fasteignasali
http://www.fastmos.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2086367
Landnúmer
126241
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar 2006/07
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Rotþró fyrir neðan hús
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Rafmagnskynding, hitakútur
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Í helluborði er sprunga en samkvæmt seljanda virka hellurnar þrátt fyrir það. Móða er í gleri í stofu. Á timburverönd er "Softub" rafmagnspottur sem fylgir, ca. 20 ára. Ástand pottsins er ekki vitað. Ástand slátturvéla ekki vitað.
Kvöð / kvaðir
Eyrar 11: Lóðarleigusamningur, 441-A-014874/2025 - Leigutími er 1.7.2025-30.6.2050. Yfirlýsing, 411-000345/1998.
Eyrar 13: Afsal, 411-000716/1997. Lóðarleigusamningur, 441-A-014875/2025 - Leigutími er 1.7.2025-30.6.2050. Yfirlýsing, 411-000345/1998.
Samkvæmt þinglýstum heimildum hafa lóðareigandi og eftir atvikum sumarhúsafélagið Valshamar forkaupsrétt af eignunum. Við kaupsamning skal liggja fyrir yfirlýsing um höfnun forkaupsréttar.
Samkvæmt opinberri skráningu er byggingarár 2006. Það ár var viðbygging byggð. Eldri hluti hússins rúmlega áratug fyrr samkvæmt seljanda.
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Sumarhús á fallegum stað við Eyrar 13 í Eilífsdal í Kjós. Eignin stendur á vel staðsettri um 3.346,7 m2 leigulóð sem er skógi vaxin. Með eigninni selst 5.188,4 m2 sumarhúsalóð (leigulóð) við Eyrar 11, fasteignanúmar F2331921, sem stendur við hlið eignarinnar. Nýir lóðarleigusamningar til 25 ára undirritaðir í lok árs 2025. Sumarhúsið er skráð 73,1 m2, þar af frístundahús 72,4 m2 og pallur 0,7 m2. Auk þess er geymsluskúr á timburverönd við húsið. Húsið skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft og baðherbergi. Innbú fylgir með í kaupunum. Stór og góð timburverönd er við húsið. Rafmagnskynding og hitakútur fyrir neysluvatn. Hitaveita komin að lóðarmörkum. Símahlið til að komast inn á svæðið. Frábær staðsetning í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Getur verið laus við kaupsamning.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **

Nánari lýsing:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi, fataskáp og fatahengi. Úr forstofu/holi er útgengt á timburverönd.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri hvítri innréttingu með bakaraofni, helluborði, viftu og uppþvottavél. Ísskápur stendur við hlið innréttingar. 
Stofa/borðstofa er opin við eldhús, björt og falleg með parketi á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi, tvöföldu rúmi og koju.
Svefnloft er ofan við svefnherbergi 2 og er gengið upp um stiga úr eldhúsi/stofu. Rýmið er opið við stofu en lokað af með grindverki.
Baðherbergið er með parketi á gólfi, innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni og sturtuklefa. Tveir opnanlegir gluggar eru í rýminu. Hitakútur er staðsettur á lofti fyrir ofan baðherbergi en aðgengi er úr svefnherbergi 1.
Geymsluskúr stendur á timburverönd við húsið, ca. 5,6 m2. Rafmagn er í skúrnum.

Endurbætur samkvæmt seljanda: Árið 2006/2007 var viðbygging byggð þar sem nú er svefnherbergi 1 og baðherbergi. Eldhús var þá fært þar sem það er nú og neysluvatnslagnir endurnýjaðar.

Gjöld: Fasteignagjöld 2026 eru samtals 185.100 kr. fyrir báðar eignir. Brunatrygging 2026-2027 er 61.040 kr. Lóðarleiga 2025-2026 er 170.000 fyrir hvora lóð eða samtals 340.000 kr. Félagsgjald í sumarhúsafélag Valshamars er 50.000 kr. fyrir hvora lóð, samtals 100.000 kr. fyrir árið.

Verð kr. 49.900.000,- 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stekkjarhóll, Kjós
Bílskúr
Stekkjarhóll, Kjós
276 Mosfellsbær
268.5 m2
Einbýlishús
514
667 þ.kr./m2
179.000.000 kr.
Skoða eignina STARMÝRI 21-23 ÍBÚÐ 202
Starmýri 21-23 Íbúð 202
740 Neskaupstaður
168.1 m2
Fjölbýlishús
514
315 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Draumheimar 5
Skoða eignina Draumheimar 5
Draumheimar 5
301 Akranes
74.4 m2
Sumarhús
413
536 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 40
60 ára og eldri
Opið hús:21. maí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Skúlagata 40
Skúlagata 40
101 Reykjavík
63.4 m2
Fjölbýlishús
211
834 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin