Smyrilshlíð 1 –
Íbúð 306, 102 Reykjavík.
Vel skipulögð
3ja herbergja íbúð á 3. hæð við
Smyrilshlíð 1 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 89,8 fm og hefur
tvö svefnherbergi, opið alrými með stofu og eldhúsi,
8,8 fm svalir, sérgeymslu í kjallara og
stæði í bílageymslu. Hér er um að ræða íbúð í lyftuhúsi á góðum stað við Hlíðarenda þar sem stutt er í miðborgina, útivist og helstu þjónustu.
Skráð stærð 89,8 fm.
Helstu atriði- 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með tveimur svefnherbergjum.
- 8,8 fm svalir.
- Stæði í bílageymslu og sérgeymsla í kjallara.
- Lyftuhús á góðum stað við Hlíðarenda.
Nánari upplýsingar veita:Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsingVið Smyrilshlíð 1 er að finna þessa vel skipulögðu
3ja herbergja íbúð á 3. hæð sem hentar vel þeim sem leita að íbúð á miðsvæði með góðu skipulagi og þægilegu aðgengi. Komið er inn í anddyri með skápum og þar inn af er
baðherbergi með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og myndar rúmgott alrými með góðu flæði.
Svefnherbergin eru tvö og bæði með góðum skápum. Frá stofu er útgengt á 8,8 fm
svalir sem bæta notagildi íbúðarinnar og tengja rýmið vel við útisvæðið. Sérgeymsla er í kjallara og
bílastæði fylgir í bílageymslu. Staðsetningin er góð þar sem stutt er í miðborgina, þjónustu, útivistarsvæði og íþróttastarf.
Öflugt húsfélag í húsinu þar sem eru t.d. skipulagðar jólaskemmtanir, Halloween fyrir börnin og fleira.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.