LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali, kynna fallega 4.herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð við Kjarrhólma 8 í Kópavogi. Eignin er einkar vel skipulögð, björt og rúmgóð. Birt stærð eignar er 102,1m2 samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 12,7 m2 geymsla.
Eignin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. Einnig fylgir sérgeymsla í kjallara og hlutdeild í snyrtilegri sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með dökkri innréttingu með flísum á milli skápa, bakaraofni í vinnuhæð , gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi og fallegu útsýni.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi, útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.
Barnaherbergi með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á góilfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, walk-in sturta, falleg innrétting með vaski ofaná, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottahús, innan íbúðar með borðplötu með skolvaski, hillur, flísar á gólfi.
Geymsla, sérgeymsla í kjallara með máluðu gólfi. Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla sem og þurrkherbergi.
Fyrir framan húsið eru fjölmörg sameiginleg bílastæði og hafa verið settar upp nokkrar hleðslustöðvar. Við húsið er sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Húsgjöld í húsfélagið Kjarrhólma 2-38 eru kr 21.855 kr á mánuði en þá er innifalin húseigendatrygging, almenn húsgjöld og framkvæmdasjóður. Húsgjöld í húsfélagið Kjarrhólma 8 eru kr 9595 kr á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur, allur hiti, rafmagn í sameign og þrif á sorpgeymslu.
Sameign hússins er mjög snyrtileg og hefur fengið gott viðhald. Árið 2018 voru gerðar endurbætur á hitainntaki í lagnaherbergi. Árið 2020 var stigagangur endurnýjaður, málaður og teppalagður, auk þess sem ný lýsing, tenglar og rofar voru sett upp. Árið 2022 var rafmagnstafla endurnýjuð og árið 2023 var settur upp nýr dyrasími með myndavélakerfi. Nýlega var svo skipt um alla glugga á suðurhlið á stigagangi.
Á árunum 2017–2026 hafa farið fram umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu. Þar má nefna glugga- og glerskipti á bæði suður- og norðurhlið, múrviðgerðir og lagfæringar á svölum, málun á gluggum, svalahandriðum og veggjum, auk þakviðgerða þar sem öll þök hafa verið yfirfarin og/eða endurnýjuð, auk múrviðgerðir og málun sem nýlega var kláruð á norðurhlið. Einnig er nýlega búið að skipta um allt gler á suðurhlið á þessari eign.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is