Fasteignaleitin
Skráð 27. maí 2026

Þinghóll 1

EinbýlishúsSuðurnes/Sandgerði-245
214 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.100.000 kr.
Fermetraverð
650.000 kr./m2
Fasteignamat
8.730.000 kr.
Mynd af Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2332841
Landnúmer
208392
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
steyptar einingar
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Ál/tré
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt og vandað einbýlishús með miklum íburði í Suðurnesjabæ
Einstakt tækifæri til að eignast nýtt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innangengum bílskúr, hannað með áherslu á þægindi og nútímalega hönnun.
Húsið er alls 214,1 fm, þar af er íbúðarhluti 168,2 fm og bílskúr 45,9 fm.

Hér er um að ræða einstaklega vandað og vel hannað heimili sem uppfyllir kröfur nútímans um gæði, útlit og notagildi

Nánari upplýsingar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, tölvupóstur haukur@allt.is


Innréttingar og skápar eru sérsmíðaðir frá Formus, úr brúnbæsaðri eik sem gefur rýminu hlýju og karakter. Borðplötur eru úr kvartssít (Taj Mahal) Blöndunartæki frá Ebson, framleiðandi Gessi í black metal.
Innihurðir eru einnig frá Formus úr brúnbæsaðri eik, innfelldar og gegnheilar án gerefta, með stílhreinum gunmetal hurðarhúnum og smartlock læsingum.
Útidyrahurð frá Glófaxa er búin fingrafaraskanna.
Eldhús og tæki: Hágæða AEG raftæki frá Ormsson, þar á meðal innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél.
Rafmagnsarinn í millivegg milli stofu og borðstofu setur fallegan svip á alrýmið.
Baðherbergi í hæsta gæðaflokki: Baðrými eru klædd microsementi á gólfum og veggjum. Vegghengd handlaugartæki frá Gessi, loftsturtuhaus, innbyggðar hillur og stílhreint Camargue skolsalerni sem hefur skol ásamt hita í setu.
Gluggar og hurðir eru ál/tré frá Gluggatækni, svartir að utan og hvítir að innan, með sólarvarnargleri sem eykur þægindi og birtustýringu.
Lóðin er einstaklega vel skipulögð - steypt bílaplan með snjóbræðslu, sólpallur með skjólveggjum og timburklæddu gólfi, ásamt bæði heitum og köldum potti.
Gólf í öllu húsinu eru klædd ljósu microsementi frá Epoxy gólf.
Veggir eru úr lemga hleðslusteinum með límdum gipsplötum, sparslaðir og málaðir.
og loft eru gips með innbyggðri LED lýsingu og skuggafúgum sem skapa hlýlega stemningu.

Gólfhiti er í allri botnplötu og tryggir jafn og þægilegan hita. Í húsinu er fullbúið loftræstikerfi sem tryggir góð loftskil
Gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla og húsið er byggt úr forsteyptum einingum með framúrskarandi einangrun sem fer fram úr reglugerðarkröfum.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tangabryggja 13
Bílastæði
Skoða eignina Tangabryggja 13
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
1120 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugata 16
Bílskúr
Skoða eignina Öldugata 16
Öldugata 16
101 Reykjavík
397.6 m2
Einbýlishús
633
Fasteignamat 240.150.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hvammstangabraut 35
Bílskúr
Hvammstangabraut 35
530 Hvammstangi
242.2 m2
Einbýlishús
224
281 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin