Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2026

Asparholt 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
116.8 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
744.007 kr./m2
Fasteignamat
84.700.000 kr.
Brunabótamat
61.750.000 kr.
Mynd af Sigurjón Rúnarsson
Sigurjón Rúnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2004
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2272222
Landnúmer
198362
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Yfirbyggðar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Asparholt 5, 225 Garðabær, birt stærð 116.8 fm.
Falleg og björt fjögurra herbergja endaíbúð á þriðju og efstu hæð með sérinngangi. Íbúðin stendur á vinsælum og fjölskylduvænum stað á Álftanesi, þar sem grunnskóli, leikskóli og íþróttasvæði eru í næsta nágrenni. Úr alrýminu er gengið út á rúmgóðar, yfirbyggðar svalir til suðausturs. 

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, samliggjandi stofu og eldhús í opnurými, geymslu innan íbúðar og yfirbyggðar svalir.
 
  • Sérinngangur
  • Rúmgóðar, yfirbyggðar svalir til suðausturs
  • Möguleiki á þriðja svefnherbergi samkvæmt upprunalegri teikningu
  • Þvottahús innan íbúðar
  • 2 Sérmerkt bílastæði, annað með hleðslustöð
  • Grunnskóli, leikskóli og íþróttasvæði í göngufæri

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Flísar á gólfi.
Geymsla: Inn af forstofu er geymsla með flísum á gólfi og opnanlegum glugga. Það nýtist vel sem geymsla, vinnuherbergi eða aukasvefnherbergi.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, bæði með parketi á gólfi og fataskápum. ( möguleiki er að bæta þriðja svefnherbergi miðað við upprunalega skipulag)
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er nýlegur sturtuklefi með nýjum blöndunartækjum frá Tengi. Falleg innrétting með vask og góðu skápaplássi. Upphengdur handklæðaofn og salerni.
Þvottaherbergi: Rúmgott sérþvottahús með flísum á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi og falleg U-laga innrétting, lökkuð fyrir um 6 árum og nýborðplata sett ásamt nýlegum tækjum.
Stofa: Rúmgóð og björt, með parketi á gólfi. Hún tengist eldhúsinu í opnu alrými og þaðan er gengið út á yfirbyggðarsvalirnar.
Svalir: Rúmgóðar og yfirbyggðar, til suðausturs. Fallegt útsýni.
Sérmerkt bílastæði er á bílaplani.
Hjólageymsla er í sameign á jarðhæð.

Staðsetning
Íbúðin er á barnvænum og rólegum stað á Álftanesi. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði eru í stuttu göngufæri, svo börnin komast sjálf í skóla og tómstundir. Stutt er í óspillta náttúru og strandlengju Álftaness, sem er tilvalin til útivistar.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Goðatún 5
Skoða eignina Goðatún 5
Goðatún 5
210 Garðabær
100 m2
Fjölbýlishús
312
Tilboð
Skoða eignina Lynghólar 34
Skoða eignina Lynghólar 34
Lynghólar 34
210 Garðabær
140 m2
Hæð
524
957 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 407
Strandgata 26 íb. 407
220 Hafnarfjörður
126,9 m2
Fjölbýlishús
312
1181 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 505
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 505
220 Hafnarfjörður
95,4 m2
Fjölbýlishús
312
1404 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin