Fasteignaleitin
Skráð 11. apríl 2026

Langholt 8

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
269.8 m2
8 Herb.
7 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
481.468 kr./m2
Fasteignamat
105.350.000 kr.
Brunabótamat
123.150.000 kr.
Mynd af Páll Konráð Pálsson
Páll Konráð Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2089754
Landnúmer
127734
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
ágætt, þarfnast að hluta viðhalds
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Lind fasteignasala og Páll Konráð Lgf. kynna falleg og vel skipulagt 270 fm einbýlishús með bílskúr í holtinu Keflvík. Eignin er í dag með sjö svefnherbergi. 
Langholt 8 er vel byggt staðsteypt hús, einangrað að innan og með steyptri þakplötu og uppstóluðu einhalla þaki. Eignin stendur á stórri og gróinni eignalóð sem er afgirt á alla kanta.
 

Vel staðsett eign í botngötu ofarlega í holti, Keflavíkur hluta Reykjanesbæjar. Gatan nýtur skjólsældar gróins hverfis og nálægðar við gróið opið svæði.  Einstök götumynd einkennir Langholt þar sem graseyjur eru innbyggðar í steyptar gangstéttar beggja vegna götu. Þetta var sameiginlegt átak þeirra sem byggðu götuna og sveitarfélagsins. Langholt er eina gata sveitarfélagsins sem útfærð er með þessum hætti. 

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is & Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali,  S:699-4040, hafthor@fastlind.is.

Skv. FMR er eignin skráð 269,8 fm, íbúðarhluti 240,1 fm og bílskúr 29,7 fm.

Jarðhæð:

Forstofa: Nýjar flísar á gólfi með nýlögðum gólfhita. Opið fatahengi. inn af forstofu er stigagangur í kjallara.
Gestasalerni: Inn af forstofu er lítið salerni.
Svefnherbergi 1: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskáp og glugga sem snýr í austur.
Svefnherberbergi 2: Rúmgott og bjart með glugga sem snýr að götu.
Svefnherbergi 3 og 4: tvö barnaherbergi með glugga í austur. Annað þeirra er nýtt sem skrifstofa og gestaherbergi. 
Baðherbergi: Nýlega gert upp (2023). fallegri baðinnréttingu með vaski, spegill með baklýsingu, gott skápapláss, vegghengt salerni og rúmgóð sturta. Hitalögn var lögð í gólf og sturtu. Allar lagnir innan baðherbergis voru endurnýjaðar, flísar á gólfi og veggjum.
Sjónvarpsherbergi: Sjónvarpsherbergi tengir saman eldhús, stofu og borðstofu.
Borðstofa/stofa: Stofan er björt með tveimur stórum gólfsíðum gluggum til austurs, gengið út í rúmgóðan og notalegan skjólsælan bakgarð út frá stofu.
Eldhús: Með hvítri eldhúsinnrétting frá 2018 með stórri eyju sem er með spanhelluborði, vaski og uppþvottavél, steinn á eyju frá Granítsmiðjunni, setuplássi fyrir 8-10 manns við enda og gegnt vinnuaðstöðu er á eyjunni. Ofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni fyrir ofan. Mjög gott skápapláss.
Bílskúr: Með góðri lofthæð og geymslulofti að hluta, vinnuborði, talíu til hífinga ofl. Frá geymslulofti er opið inn á uppstólað þak .
Lóðin: Eignarlóð. Er stór og gróin, afgirt á alla kanta með steyptum stoðveggjum.
Bakgarður er í endurnýjun og lagning 60 m2 útiflísa hafin að ný aflokinni jarðvinnu. Stór pallur með útiflísum mun þannig tengja svefnherbergisgang jarðhæðar við bakgarð og stóran steyptan heitan pott. Bakgarðurinn er að fullu afgirtur og varinn með háu grindverki og er mikill griðastaður fjölskyldu og fugla sem fá daglegar matargjafir. 
 
Kjallari:
Í kjallara liggur steyptur ný teppalagður stigi frá forstofu.
Þvottahús: Mjög rúmgott þvottahús með nýlegri innréttingu (2020) og góðu skápaplássi, hengjum og hirslum fyrir þvott, föt og skó. Þaðan er útgengt í garð til austurs. Stórt vinnuborð þar sem auðveldlega má koma fyrir vaski - allar tengingar til staðar.
Geymsla: með góðu hilluplássi (að hluta undir stiga).
Svefnherbergi: Þrjú stór svefnherbergi sem auðvelt er að opna á milli.
Inntaksrými:  vatns/baðherbergi: Inntaksrými vatns- og hitaveitu með vaski og sturtu.

Nýlegar framkvæmdir skv. seljanda.
Árið 2023
Tekin inn 3ja fasa tenging og ný aðaltafla með sér smáspennu hluta sett upp ásamt nýjum lagnaleiðum að hleðslustöð fyrir rafbíla, garðlýsingu og úti tenglum. Fyrri aðaltöflu var breytt og allur varbúnaður endurnýjaður ásamt lögn að nýrri aðaltöflu. Ný lögn var lögð að eldhúseyju til að anna spanhellum ofl.
Allar lagnir á baðherbergi jarðhæðar voru endurnýjaðar,  vatn, ofnalagnir og frárennsli að stofni í kjallara. Dæla í kjallara, sem annar þvottahúsi og baðherbergi endurnýjuð ásamt lögn frá henni að stofni fráveitu. Stofn fráveitu frá húsi að stofni í götu er úr plasti (ca. 15 ára).
Árið 2020
Ljósleiðartengingar frá Ljósleiðaranum og Mílu lagðar að smáspennu hluta nýrrar aðaltöflu. Nýjar coax lagnir fyrir sjónvarp frá loftneti að sjónvarpsrými (UHF) og Cat5 lagnir fyrir nettengla /WiFi /sjónvarp.
Lögn að heitum potti og blöndunarbúnaður í inntaksrými var endurnýjað

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is & Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali,  S:699-4040, hafthor@fastlind.is.


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/05/201736.350.000 kr.53.000.000 kr.269.8 m2196.441 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1965
29.7 m2
Fasteignanúmer
2089754
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.500.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vogaland 3
Opið hús:12. apríl kl 13:30-14:00
Vogaland 3.jpg
Skoða eignina Vogaland 3
Vogaland 3
108 Reykjavík
265.6 m2
Einbýlishús
835
791 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0324
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
324.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0324
Laugaborg 0324
105 Reykjavík
111.4 m2
Fjölbýlishús
312
978 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (301)
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
301.jpg
Skoða eignina Laugaborg (301)
Laugaborg (301)
105 Reykjavík
126.2 m2
Fjölbýlishús
322
1228 þ.kr./m2
155.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (404)
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
404.jpg
Skoða eignina Laugaborg (404)
Laugaborg (404)
105 Reykjavík
121.2 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin