Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Kirkjubraut 2

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
159 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.700.000 kr.
Fermetraverð
501.258 kr./m2
Brunabótamat
77.350.000 kr.
Byggt 1956
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2102071
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir: Sérlega glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð 159 fm sérhæð á þriðju hæð í vel staðsettu húsi við Akratorg. Um er að ræða einstaka eign sem hefur verið endurnýjuð af mikilli smekkvísi með fáguðum innréttingum og vönduðum tækjum. Útsýnið er sjaldgæft og nær í allar áttir. Eignin er staðsett í hjarta bæjarins, í göngufæri við alla helstu þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Innra skipulag og endurbætur:
Eldhús hefur verið endurnýjað á árunum 2020 og 2022 með fallegri innréttingu, flísalögðu gólfi, innbyggðri Miele uppþvottavél, tvöföldum amerískum ísskáp og örbylgjuofni sem fylgir með. Útsýnið úr eldhúsglugganum yfir Akrafjallið er sannkallað augnayndi.

Þvottahús er sér herbergi með glugga og hurð, ný gólfefni og innréttingar frá árinu 2022, flísalagt gólf og vinnuborð með vaski og krana. Ný tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru til staðar og gert er ráð fyrir sturtu með tengingum í vegg.

Stofa og borðstofa eru bjartar með stórum gluggum sem bjóða upp á einstakt útsýni yfir Akratorg og höfnina. Nýtt parket var lagt árið 2020 og hluti veggja hefur hljóðeinangrun með innbyggðum skáp.

Svefnherbergisgangur og sjónvarpshol eru með nýlegu parketi frá 2020. Útgengi er á svalir með stórfenglegu útsýni yfir Akrafjall, Faxaflóa og Langasand.

Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni og hefur nýtt parket verið lagt á öll árið 2023. Hjónaherbergið er með sér fataherbergi sem er vel skipulagt með innbyggðum skápum og skúffum.

Baðherbergið hefur verið endurnýjað á árunum 2020 og 2022 og skartar sérlega vönduðum innréttingum, sjónsteypu og múruðum veggjum, náttúrusteinflísum á gólfi og hluta veggja, frístandandi baðkari, handlaugum og blöndunartækjum.

Innréttingar og búnaður:
Allar innihurðir eru hvítlakkaðar og úr eik. Rafmagn hefur verið endurnýjað árið 2022 með Shelly snjalllausnum og hágæða efni frá Jung í tenglum og rofum um alla íbúðina. Kastarabrautir og lýsing eru ný og geta fylgt með í kaupum. Mynddyrasími tengdur snjallsíma og öryggiskerfum fylgir. Flestir gluggar og gler hafa verið endurnýjuð, að undanskildum þremur gluggum sem þó fylgja með gleri í geymslu.

Sameign og viðhald:
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu á jarðhæð. Sameign hússins hefur verið tekin í gegn, m.a. múrviðgerðir og málingar í porti og á stigapalli árið 2024. Nýjar hurðir hafa verið settar á svalir og stigagang, rafmagn og lýsing endurnýjuð í sameign. Neysluvatnslagnir í húsinu hafa verið endurnýjaðar að verulegu leyti. Húsið er með varmaskipti. Þakið var yfirfarið árið 2016 og túður settar upp fyrir betri loftun.

Aðkoma og öryggi:
Lóðin og öll aðkoma er vöktuð með vönduðu öryggismyndavélakerfi sem nær yfir bílastæði, stigapall og innganga. Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild í eignarlóð samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu og aðgangur að sameiginlegri hjólageymslu á jarðhæð.

Staðsetning:
Staðsett á Akratorgi, í algerlega miðlægri og eftirsóttri götu þar sem stutt er í verslun, þjónustu, skóla og aðra nauðsynlega innviði. Útivistarparadísin Langisandur er í göngufæri, sem gerir staðsetninguna enn eftirsóknarverðari. Upplýsingar í sölutexta um endurbætur og annað eru fengnar frá seljanda.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/07/202662.100.000 kr.70.000.000 kr.159 m2440.251 kr.
06/09/202347.800.000 kr.58.700.000 kr.159 m2369.182 kr.
03/12/202038.250.000 kr.44.000.000 kr.159 m2276.729 kr.
13/03/201933.350.000 kr.34.000.000 kr.159 m2213.836 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Völvufell 30
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:45
Völvufell 30.jpg
Skoða eignina Völvufell 30
Völvufell 30
111 Reykjavík
166.8 m2
Raðhús
714
545 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Screenshot 2026-07-17 at 16.18.54.jpeg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
152.8 m2
Fjölbýlishús
524
717 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 10
Bílastæði
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tryggvagata 10
Tryggvagata 10
800 Selfoss
165.9 m2
Fjölbýlishús
524
783 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin