Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2025

Dvergahraun 28

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
221.1 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
677.974 kr./m2
Fasteignamat
106.900.000 kr.
Brunabótamat
94.900.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2292025
Landnúmer
202170
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
nýlegt
Gluggar / Gler
nýlegt
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna afar vandað og glæsilegt 7 herbergja heilsárshús með tvöföldum bílskúr við Dvergahraun 28 í Grímsnes-  og Grafningshreppi.  Eignin stendur á einstökum stað innst í um 1 km löngum botnlanga á 7500 fm eignarlandi sem liggur að Skógræktarsvæði  Grímsness. Göngustígar liggja til allra átta um skógræktarsvæðið þar sem njóta má fallegs landslags með hrauni, mosa og lágvöxnu kjarri. 
Vegir liggja í þrjár áttir um skógræktarsvæðið sem geta nýst sem varaleið út af svæðinu ef þörf krefur. Læst hlið inn á svæðið sem aðeins sumarhúsaeigendur hafa aðgang að. 
Birt stærð eignar er 221fm, þar af 39,9 fm tvöfaldur bílskúr með mikilli lofthæð og tveimur stórum innkeyrsluhurðum.

Vel hefur verið hugað að viðhaldi eignarinnar á undanförnum árum. 

Mögulegt er að kaupa aðliggjandi viðbótarland 6.500 fm að stærð.

Staðsetning eignarinnar er afar eftirsóknarverð á frábærum stað í Grímsnesinu,
 innan við klukkustundarakstur frá höfuðborgarsvæðinu. 

ATH! Seljendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu. 

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali , ingunn@domusnova.is S: 856 3566

SKIPULAG EIGNAR: Andyri, stofa, sólstofa með arni, borðstofa / stofa, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, bílskúr. 
  • Sérsmíðaðar eikar innréttingar frá Fagus eru í eldhúsi og baðherbergjum, sem og fataskápar og hurðir.
  • Gólfefni hússins eru vandað harðviðarparket og fallegar dökkar flísar. Epoxy á bílskúrsgólfi.
  • Gólfhiti er í öllu húsinu. 
  • Aukin lofthæð í flestum rýmum.
  • Innfelld lýsing er í öllum loftum, óbein lýsing er í andyri, sólskála og skála með borðstofu. Næturlýsing á tímarofa er á svefnherbergisgangi. 
  • Sérsniðnar myrkvunargardínur í öllum svefnherbergjum og sérsniðnar screen gardínur í öðrum gluggum.
  • Megnið af innbúi getur fylgt með í kaupum. 
HÚSIÐ:
  • Húsið er reist úr timbri með aukinni þykkt i útveggjum og klætt með viðhaldsléttum efnum á ytra birði, báðar klæðingagerðir eru harðviður (Jatoba viður og Duropal harðpressaðar plötur).
  • Allir gluggar eru úr harðvið. Gluggar í svefnherbergjum eru hannaðir þannig að hægt er að opna bæði efri og neðri huta samtímis og geta því nýst sem neyðarútgangur ef þörf krefur. 
  • 39,9 fm tvöfaldur bílskúr, staðsteyptur og klæddur með sömu harðviðar klæðningu og er utan á húsinu, aukin lofthæð, tvær vandaðar innkeyrsluhurðir með rafdrifnum hurðaopnara með fallvörnÁ vesturhlið bílskúrs eru vandaðir harðviðargluggar með opnanlegum fögum og inngönguhurð með hurðapumpu. Led ljósalampar eru í loftum sem gefa mjög góða lýsingu. Loft eru klædd vönduðum rakaþolnum loftaplötum frá Þ.Þorgrímssyni og er hiti í gólfi ásamt niðurfalli. Bílaplan er steypt að hluta með stimplaðri steypu. 
LÓÐIN: 
  • Glæsileg um 200 fm harðviðarverönd úr Lerki liggur meðfram nær öllu húsinu. Á veröndinni eru tvö vel hönnuð útivistarsvæði , annað þeirra með heitum potti sem skapa einstaklega notalega aðstöðu til útiveru.
  • Vandaðir skjólveggir umlykja húsið á þrjá vegu, en suður og vesturhliðin er opin og nýtur glæsilegs óhindraðs útsýnis yfir náttúru, gróður og fjallasýn. 
  • Lýsing er í palli framan við hús, undir þakskyggni og óbein lýsing við bílastæði.
  • Grasteppi er að hluta ofan á timbri á verönd og utan við veröndina til að hindra ágang gróðurs að húsinu.
  • Gott leiksvæði er aftan við hús fyrir börn með vönduðum rólum frá Krumma.
  • Á verönd er góður geymsluskúr fyrir grill.
  • Ruslatunnuskýli er á lóð fyrir framan hús. 

NÁNARI LÝSING:
Anddyri
 : Rúmgott með stórum fataskáp. Innfelld Led lýsing í lofti ásamt óbeinni lýsingu meðfram lofti, báðar lýsingar með dimmer.
Stofa : Er í opnu rými með eldhúsi og sólskála, aukin lofthæð. Góð lýsing er í loftum og veggljós með dimmer.  
Eldhús :Er mjög rúmgott með fallegri sérsmíðaðri eikar innréttingu ásamt stórri eyju með miklum hirslum. Vönduð Miele tæki í eldhúsi, span helluborð og vifta ásamt uppþvottavél. Liebherr ísskápur. Vola blöndunartæki. Góð lýsing er undir efri skápum og er sama klæðning á veggjum og borðplötum undir efri skápum.
Borðstofa: Er í glæsilegu rými sem var byggt árið 2022, gólfsíðir gluggar dökkar flísar á gólfum, innfelld óbein ledlýsing í lofti og útgengt úr borðstofu á tveimur stöðum, m.a. út á stóran pall sem snýr til suðurs. 
Sólstofa:  Mjög notaleg sólstofa / arinstofa með einstaklega fallegum og vönduðum arni frá Funa. Gólfsíðir gluggar eru í allri sólstofunni með glæsilegu óhindruðu útsýni yfir náttúru og landslag, þ.m.t. Skógræktarsvæðið sem blasir við. Útgengt er úr sólstofu út á stóra verönd til suðurs og vesturs.

Svefnherbergisgangur er lokaður af frá öðrum rýmum eignarinnar.
Hjónaherbergi: Rúmgott, stór fataskápur. Mikil lofthæð með innfelldri lýsingu á dimmer. Gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með fataskáp, góðri lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum með dimmer.
Svefnherbergi 3: er rúmgott með fataskáp, góðri lofthæð og innfelldri lýsingu í lofrum með dimmer.
Baðherbergi 1:  Flísalagt í hólf og gólf með vandaðri innréttingu, innfelld lýsing í loftum og í spegli ásamt mjög góðum hirslum. Walk-in" sturtuklefi. Vola blöndunartæki. Upphengt salerni. Gluggi með opnanlegu fagi. Miele þvottavél og þurrkari í innréttingu.
Svefnherbergi 4: Er staðsett inn af viðbyggingu, aukin lofthæð með innfelldri lýsingu í loftum með dimmer. Baðherbergi er inn af svefnherbergi með innréttingu, "walk-in sturta" ,Vola blöndunartæki, upphengt salerni.  Gluggi með opnanlegu fagi. Fataskápur og lítil geymsla innan herbergis með opnanlegum glugga.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 39,9 fm tvöfaldur bílskúr, staðsteyptur,  klæddur með sömu harðviðar klæðningu og er utan á húsinu, aukin lofthæð, tvær vandaðar innkeyrsluhurðir með rafdrifnum hurðaopnara með fallvörn. Á vesturhlið bílskúrs eru vandaðir harðviðargluggar með opnanlegum fögum og inngönguhurð með hurðapumpu. Led ljósalampar eru í loftum sem gefa mjög góða lýsingu. Loft eru klædd vönduðum rakaþolnum loftaplötum frá Þ.Þorgrímssyni og er hiti í gólfi ásamt niðurfalli. Bílaplan er steypt að hluta með stimplaðri steypu.  
Inntök rafmagns og vatns: eru í flísalagðri geymslu með góðu aðgengi. Gluggi er á geymslu ásamt góðu hilluplássi.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali 
ingunn@domusnova.is S: 856 3566
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.dÞ.. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
39.9 m2
Fasteignanúmer
2292025
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðibrekka 11
Heitur pottur
Skoða eignina Víðibrekka 11
Víðibrekka 11
805 Selfoss
92.9 m2
Sumarhús
513
645 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Álftavatn 13
Heitur pottur
Skoða eignina Álftavatn 13
Álftavatn 13
805 Selfoss
97 m2
Sumarhús
524
772 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Á einni hæð
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Heiðarbraut 4
805 Selfoss
80.4 m2
Sumarhús
624
558 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 27
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Þórsstígur 27
Þórsstígur 27
805 Selfoss
165.6 m2
Sumarhús
534
881 þ.kr./m2
145.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin