Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Glæsileg, nýlega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðum sérafnotareit og
stæði með hleðslustöð í bílakjallara . Eignin er í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi, þar sem stutt er í fallega náttúru og grunn- og leikskóla. Íbúðin hefur verið
mikið endurnýjuð, þar á meðal eldhús, gólfefni, hurðir og baðherbergi að hluta.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum. Skipting eignar:Forstofa, þvottahús, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými. Útgengi úr stofu út á skjólgóðan sérafnotareit með fallegu útsýni.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fataskáp.
Þvottahús: Inn af forstofu, með glugga og flísum á gólfi. Nett innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur og hillur.
Baðherbergi: Nýr vaskur og vaskaskápur með skúffum. Walk-in sturta, baðkar, vegghengt klósett og handklæðaofn. Nýtt sturtutæki og blöndunartæki frá Grohe. Flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum og vönduðum fataskáp frá Kvik innréttingum. Fallegt parket á gólfi. Þegar herbergi var stækkað var hljóðeinangrun frá stofu bætt sérstaklega.
Barnaherbergi: Parketlagt gólf og nýlegur skápur.
Stofa: Útgengt á skjólgóðan og sólríkan sérafnotareit. Björt og opin stofa með fallegri klæðningu frá Egill Árnason á sjónvarpsvegg. Raflagnir að sjónvarpsvegg hafa einnig verið endurnýjaðar. Veggur að stofu hefur verið styrktur til að bera stærri sjónvörp. Parket á gólfi.
Eldhús: Danskt eldhús frá Kvik, nýlega endurnýjað árið 2020. Eldhúsið er með vandaðri innréttingu, útdraganlegum skúffum í neðri skápum, háum búrskáp, og vínkæli. Innbyggður Liebherr ísskápur og frystir með klakavél, auk Grohe blöndunartækja, gerir þetta eldhús sérstaklega aðlaðandi. Eldhúsið er í opnu rými við stofuna með rými fyrir borðkrók.
Sérafnotareitur:Skjólgóður og sólríkur pallur / afnotareitur, fullkominn fyrir grill á góðum sumar- eða vetrardegi með fallegu útsýni til náttúru. Nóg pláss fyrir útihúsgögn.
Fjölskylduvænt umhverfi: Eignin er staðsett í rólegu og vinsælu hverfi, stutt frá náttúruperlum, leikskólum, grunnskólum, gönguleiðum. Leiksvæði og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Sími 450-0000