Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Hringbraut 109

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
52.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
51.900.000 kr.
Fermetraverð
981.096 kr./m2
Brunabótamat
27.800.000 kr.
Byggt 1943
Jarðhæð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20252364
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir:  Virkilega falleg íbúð á fyrstu hæð, (aðeins 10 tröppur upp) á Hringbraut 109,  sem var endunýjuð 2022 á sérlega smekklegan hátt. Nýlegt eldhús, bað og gólfefni. Innbyggð uppþvottavél fylgir.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur A Björnsson lögg. fasteignasali sími 617 5161 gab@heimili.is


Íbúðin var endurnýjuð að stærstum hluta og allt gert á mjög smekklegan máta 2022, Nýlegt, vandað harðparket er á öllum rýmum nema á baðherbergi en þar eru flísar.
Nánari lýsing:
Eldhús er með nýlegri hvítri innréttingu á báðum veggjum og fallegri borðplötu frá Fanntófell. Innbyggð uppþvottavél fylgir. Gluggi í eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt, og er með nýlegri innréttingu og blöndunartækjum.
Stofa/borðstofa eru í einu rými. Þar er stór gluggi sem var nýlega skipt um og snýr til suðurs, út í bakgarð hússins.
Svefnherbergi er nokkuð rúmgott.
Sérgeymsla í kjallara með glugga. Í kjallara er pláss fyrir þvottavél fyrir hverja íbúð.
Búið er að endurnýja alla glugga í íbúðinni.
Góð staðsetning , í gamla Vesturbænum og jafnframt nálægt miðbænum. Stutt í alla þjónustu og menningu. Frábær fyrstu kaup.
Allar nánari upplýsingar gefur : Gunnlaugur A Björnsson lögg. fasteignasali sími 617 5161 gab@heimili.is


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Arnarhlíð 4
102 Reykjavík
131.2 m2
Fjölbýlishús
413
914 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin