Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2024

SPÁNAREIGNIR - Dolores

HæðÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
127 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
40.600.000 kr.
Fermetraverð
319.685 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
206251126
Landnúmer
0
Húsgerð
Hæð
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góð verönd
Upphitun
Kæling/hiti
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐAR EFRI OG NEÐRI SÉRHÆÐIR Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *SÉR BÍLASTÆÐI OG GEYMSLA*


Fallegar og rúmgóðar efri og neðri sér hæðir með góðri verönd, sér garði og aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði í Dolores, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður frá Alicante.
Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Sér bílastæði og geymsla. Verönd  út frá stofu og sér garður. Eignirnar afhendast fullbúnar húsgögnum og rafmagnstækjum.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869 

Nánari lýsing:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými.  Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Vel innréttað fatarými í einu svefnherberginu. Útgengi út á verönd og sér garð fyrir eignir á neðri hæð. Þaksvalir fylgja eignum á efri hæð. Sameiginlegur sundlaugargarður.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnsgardínur.
Öll húsgögn og rafmagnstæki fylgja.
Bílastæði.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 15 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20-30 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Dolores er hefðbundinn skemmtilegur og líflegur spænskur bær með sál og sjarma, fallegu kirkjutorgi með 18. aldar kirkju og ýmsum skemmtilegum kennileitum. Þar er finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu s.s. veitingastaði, matvöruverslanir og ótal margar gönguleiðir í fjölbreytilegri náttúru. Stutt er til næstu bæja, sem eykur fjölbreytnina. Skemmtilegur götumarkaður á föstudögum með fjölbreyttu úrvali af grænmeti og ávöxtum sem ræktað er á svæðinu og alls konar skemmtilegum varning sem manni bráðvantar, en veit það ekki fyrr en maður sér það:)

Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Verð miðað við gengi 1Evra=145 ISK:
frá 279.900 evrum  (ISK 40.600.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%.

Íbúðin er 77 fm. + 63 fm. verönd, samtals 140 fm.

Afhending í nóvember 2026 - desember 2027.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, sundlaugargarður, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Dolores,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
206251126

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarból 10
Skoða eignina Heiðarból 10
Heiðarból 10
230 Reykjanesbær
50.1 m2
Fjölbýlishús
211
768 þ.kr./m2
38.500.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 14 E
Tjarnarlundur 14 E
600 Akureyri
83.6 m2
Fjölbýlishús
312
561 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalstræti 5 nh
Aðalstræti 5 nh
600 Akureyri
117.7 m2
Hæð
312
458 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Skoða eignina Heiðarbraut 4
Heiðarbraut 4
805 Selfoss
80.4 m2
Sumarhús
624
558 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin