ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Risadalur 5A, 260 Reykjanesbær, birt stærð 108.7 fm.Ný 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi – Dalshverfi III, Reykjanesbæ
Fullbúin nýbygging á jarðhæð í Dalshverfi III. Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.
Skipulag eignar: Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sérþvottahús og geymslu (2,9 fm), sem er innan íbúðar. Íbúðinni fylgir sérafnotareitur sem snýr í suðvestur.
** Nýbygging
** Jarðhæð
** Sérinngangur
** Sérafnotareitur til suðvesturs
** Sérþvottahús og geymsla innan íbúðar
** Afhending við kaupsamning
Skilalýsing – íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum:Gólfefni: Parket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi.
Eldhús: Innréttingar frá HTH eða sambærilegar að gæðum. Helluborð, bakaraofn og háfur frá AEG eða sambærilegt.
Baðherbergi: Gólf flísalagt og veggir flísalagðir að hluta, á 2–3 veggjum upp í 2,1 m hæð. Sturta með flísalögðum sturtubotni, upphengt salerni sem er innbyggt í vegg og handklæðaofn.
Veggir: Spartlaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit.
Um húsið:Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og gluggar eru ál/trégluggar. Þakplatan er varin með tveimur lögum af viðurkenndum heilbræddum þakpappa og einangruð með XPS einangrun. Ofan á hana koma jarðvegsdúkur og lag af harpaðri þakmöl með kornastærð 60–80 mm.
Dalshverfi er nýtt og vaxandi íbúðahverfi í Reykjanesbæ.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati. Gjaldið er lagt á eftir að endanlegt brunabótamat liggur fyrir.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.