Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar íbúðir við Vorbraut 14 í Garðabæ, Íbúð 202 er 2ja herbergja með svölum sem snúa í suð-vestur.
Eignin er skráð 69,5 m2 þar af 5 m2 sérgeymsla. Bókið einkaskoðun hjá Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Kynntu þér heimasíðu verkefnisins hér.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð, fjögurra hæða lyftuhúsum með bílakjallara. Frágangur er einstaklega vandaður, gólfhitakerfi, veglegar innréttingar með steinplötum í eldhúsi og flísalögðum votrýmum. Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að bílastæðum á lóð. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Komið er inn í forstofu, eldhús með veggfastri eyju til hægri, til vinstri er baðherbergi og þvottahús, rúmgott svefnherbergi skráð 13,4 m2 með fataskápum. Stofa og borðstofa í opnu og björtu samliggjandi rými, útgengt út á svalir skráðar 5,9 m2 sem snúa í suð-vestur.
Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og íþróttastarf. Golfvellir GKG í göngufæri ásamt fallegri náttúru og útivist við Vífilstaðavatn og Heiðmörk. Skilalýsingu og allar nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.