Sigrún Ragna og Lind fasteignasala kynna í einkasölu 84.2 fm íbúð á þriðju hæð að Heiðarholti 6, 230 Reykjanesbær.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7737617, tölvupóstur sigrun@fastlind.is.
Nánari lýsing:
Forstofa með skápum
Eldhús með sprautulakkaðri innréttingu, helluborði, háf nýlegur ofn, ískápur fylgir með.
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð með útgengi út á svalir.
Tvö svefnherbergi í góðri stærð, skápar í öðru herberginu.
Baðherbergi með baðkari og sturtuhengi, ofn, salerni innrétting og speglaskápur, tengi fyrir þvottavél. Byrjað var á endurbótum á baðherbergi, ekki lokið.
Sameiginleg hjólageymsla.
Myndavéladyrasími
Stigagangur nýlega teppalagður og málaður.
! Járn á þaki endurnýjað
! Lagnir endurnýjaðar
Á neðstu hæð er geymsla sem tilheyrir íbúðinni og einnig þurrkherbergi og hjólageymsla sem er í sameign.
Aðeins farið að sjá á parketi,einnig er komið að viðhaldi á glugga og gleri í stofuglugga.
Góð eign sem vert er að skoða.
Húsgjöld eignarinnar eru kr. 20.000 á mánuði. Innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, þrif sorpgeymslu og húseigandatrygging.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
Eignin er staðsett stutt frá grunn- og leikskóla ásamt íþróttasvæði í göngufæri við miðbæ Keflavíkur.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LIND fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.