LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & INGIBJÖRG LGF. OG FÉLAGSMAÐUR Í FÉLAGI FASTEIGNASALA KYNNA:
Í einkasölu 4ra. herb.töluvert endurnýjaða enda íbúð á efstu hæð við Boðagranda í vesturbæ Reykjavíkur. Gluggar á þrem hliðum, tvennar svalir eru á íbúðinni og virkilega fallegt útsýni. Stæði í bílageymslu. Göngufæri við verslanir, skóla og helstu þjónustu bæði við Eiðistorg og Granda.
Birt stærð samkv. HMS 90,4 fm íbúð og 7,9 fm. geymslu.
Birt stærð séreignar er 98,3 fm.Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða inga@landmark.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni út á sjóinn.
✅ Tvennar svalir.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér geymslu og stæði í lokuðum bílakjallara. Forstofa: Flísar á gólfi og innbyggður fataskápur.
Hjónaherbergi: Parketlagt með eldri fataskápum og útgengi út á svalir með fallegu útsýni út yfir sjóinn.
Barnaherbergi I: Parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi Il: Parketlagt með fataskáp.
Stofa/borðstofa: Er flísalögð með útgengi út á svalir. Búið er að stúka af hluta stofu og gera vinnurými en hægt að breyta aftur í upprunalegt horf.
Eldhús: Ljós viðar innrétting á tveim veggjum, flísalagt á milli skápa, flísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél. Borðstofa í framhaldi af eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhaus. Endurnýjuð innrétting, gluggi og tengi er fyrir þvottavél og þurkara.
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð (7,9 fm.) ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: í bílakjallara merkt B31. Bílakjallari er sameiginlegur með Boðagranda 1,3,5,og 7. Gengið er niður í hann eftir rampi á bílaplani.
Innihurðar og parket á herbergjum endurnýjað 2026.
Viðhald á húsi undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2017 - Gluggar og gler yfirfarið í húsinu og skipt um það sem þurfti ásamt svalahurðum.
Gengið var frá rafmagnstengingu fyrir hleðslustöðvar við hvert stæði í bílakjallara.
2025 - Bílaplan malbikað og málað 2026
2026 - Á að mála húsið að utan í sumar ef veður leyfir (seljandi greiðir fyrir þann kostnað samkvæmt samþykktu tilboði)
Virkilega björt og fín íbúð með miklu útsýni á frábærum stað með stæði í bílakjallara. Stutt í helstu þjónustu og skóla. Fallegar göngu og hjólaleiðir í nágrenninu og meðfram sjávarsíðunni.
Húsgjöld eignar eru samtals kr. 34.039.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Ingibjörg Agnes Jónsdóttir lögg.fasteignasali gsm: 897-6717 eða inga@landmark.is
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat