Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2025
Deila eign
Deila

Stálhella 22

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
79.6 m2
Verð
36.000.000 kr.
Fermetraverð
452.261 kr./m2
Fasteignamat
2.780.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2537141
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
stálgrind + Yleiningar
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýbygging
Raflagnir
nýbygging
Frárennslislagnir
nýbygging
Gluggar / Gler
nýbygging
Þak
nýbygging
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
-
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
Erling Proppé lgf. og Remax kynna: Glæsileg og vönduð 70 m2 geymslubil á einni hæð við Stálhellu 22, 221 HFJ. 

AFHENDING BYRJUN SUMARS 2026 

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar eða SMELLTU HÉR 
Erling Proppé .lgf   //  690-1300  //  erling@remax.is 


- VANDAÐUR OG TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI -
  • 1-2 mín. akstur á nýjum vegi frá Reykjanesbrautinni. 
  • Tvö aðgangsstýrð hlið inn á afgirt svæði ásamt myndavélakerfi. - sett upp við fyrsta hús. 
  • 160mm þykkar yleiningar í þaki + 2x lag af IKO þakpappa lagt af þaktak ehf., minna varmatap og betri hljóðeinangrun td. gegn regni.
  • Yleiningarnar eru í C4 tæringarflokki að utan, C2 að innan sem þýðir betri ending og meiri gæði. 
  • Hágæða Epoxy gólf, tveggja þátta epoxy fjölliðuefni með mikið högg og slitþol.  Meiri togstyrkur en í steypu. 
  • Gólfhiti
  • Sér rafmagnsmælir fyrir hvert bil. Borgaðu bara fyrir það sem ÞÚ notar. 
  • Stórir gluggar yfir bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum sem gætu nýst sem flóttaleið.
  • Hágæða hurðir og gluggar úr áli frá Raynaers
  • Hágæða bílskúrshurðir frá Wisniowski. Bílskúrshurðarmótor fylgir.
  • Bilin eru 6,6m á breidd x 10,5m dýpt, 6,43 m hæð við útvegg, 7,8 m hæð við mæni.
  • Dregið í öll bil fyrir ljósleiðara.
  • Undirstöður & botnplata staðsteypt, niðurfallsrist verður fyrir innan innkeyrsluhurð. 
  • Engin virðisaukaskattskvöð!
Milliloft
Ath. Ekkert milliloft er í þessum húsum, húsið er samt sem áður burðarlega hannað til að þola milliloft yfir allt bilið. Vilji kaupandi setja upp milliloft og skrá það þarf hann að gera það og sækja um leyfi fyrir því hjá viðeigandi stofnunum eftir lokaúttekt á sína ábyrgð.

Burðarvirki, veggir & þak 
Húsin eru úr stálgrind, á staðsteyptum sökklum. Útveggir eru úr 120mm þykkum samlokueiningum og milliveggir í 100mm þykkt, þær eru úr harðpressaðri steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan. Einingarnar koma í tæringarflokki C4 að utan en C2 að innan. Þak er gert úr 160mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3) með tvöföldu bræddu lagi af IKO pappa frá Þaktak ehf., RAL9010 (Pure white) að innan.

Pípulagnir
Lagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, skolvaskur verður uppsettur með heitu og köldu vatni og gólfhiti til upphitunar. Skólp stammi fyrir salerni verður í gólfi í horni. (Salerni ekki uppsett) Gert er ráð fyrir lagnaendum fyrir td. Salerni.
Hitakostnaður eininga er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta í samræmi við eignaskiptasamning. 

Raflagnir
Raflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, greinatafla verður uppsett með 3-fasa rafmagni og einn uppsettur 3-fasa rafmagnstengill þar við hlið. Ljós í lofti, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara (öxuldrifinn hurðaopnari fylgir),  ljósarofi og rafmangstengill við hurð. Einnig verður útilýsing uppsett og tengd við sólúr. Sér mælir er fyrir hverja einingu, staðsettur í inntaksrými hússins.
Tvö aðgangsstýrð hlið uppsett af byggingaraðila, öryggismyndavélakerfi verður einnig uppsett og sett í umsjá húsfélags sem mun mæta mánaðarlegum kostnaði með húsgjöldum.

Ljósleiðari
Lagt inn í hvert bil fyrir háhraða interneti.

Iðnaðarhurð & gönguhurð
Iðnaðarhurð er 3,5 m á breidd og 3,2 m á hæð með gluggafleka, við hlið hennar er gönguhurð, ofan við hana er gluggi með opnanlegu fagi. Einnig eru stórir gluggar ofan við bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum sem gætu nýst sem flóttaleið.
Endabil eru aukalega með glugga með opnanlegu fagi á gafli hússins. 

Bílastæði 
Fjöldi bílastæða verður á lóð og eru þau í sameign allra, bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta. 

Lóð 
Lóðin verður afgirt við byggingu fyrsta matshluta með tveimur aðgangsstýrðum aðalhliðum. Skipulagssvæðið við Kapelluhraun 2.áfanga er innan varúðarsvæðis VA1 frá álverinu í Straumsvík og eru þar takmarkanir á notkun bygginga.

Framkvæmdir eftir afhendingu
Nokkrir matshlutar verða á lóðinni og munu þeir verða byggðir samtímis eða hver á eftir öðrum. Framkvæmdir á öðrum matshlutum gætu staðið yfir eftir afhendingu einstakra bila. Mun byggingaraðili reyna að haga svæði í kringum þann matshluta á þann hátt að eigendur verði fyrir sem minnstum truflunum. 

Allt myndefni birt með fyrirvara, það á að endurspegla endanlegt útlit eins og hægt er, einstaka atriði og útfærslur geta þó breyst. – byggingarnefndarteikningar gilda.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til  fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álhella 11A
Skoða eignina Álhella 11A
Álhella 11A
221 Hafnarfjörður
67.5 m2
Atvinnuhúsn.
532 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Straumhella 10S 109
Straumhella 10S 109
221 Hafnarfjörður
85.3 m2
Atvinnuhúsn.
433 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 6
Skoða eignina Suðurhella 6
Suðurhella 6
221 Hafnarfjörður
94.1 m2
Atvinnuhúsn.
312
371 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Dverghella 3 L (112)
Dverghella 3 L (112)
221 Hafnarfjörður
70 m2
Atvinnuhúsn.
531 þ.kr./m2
37.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin