Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

Helgamagrastræti 34

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
202.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
120.000.000 kr.
Fermetraverð
593.178 kr./m2
Fasteignamat
110.250.000 kr.
Brunabótamat
108.350.000 kr.
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2147300
Landnúmer
148195
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að stærstum hluta
Frárennslislagnir
óþekkt
Gluggar / Gler
Gluggar gamlir, póstar og gler yngra
Þak
Talið í lagi, hefur lekið einu sinni í asahláku
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Sprungur eru sýnilegar í veggjum innandyra vegna r-steins.
Þak hefur lekið einu sinni í asahláku.
Vantar gerefti á baðherbergishurð.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Helgamagrastræti 34 - 4ra herbergja mikið uppgert einbýli ásamt rúmgóðum tvöföldum bílskúr - samtals 202,3
Íbúðarhúsið er hlaðið úr r-steini og steinað, byggt árið 1942.  Efri hæðin er 109,5 m² og kjallarinn 43,8 m², samtals 153,3 m²  Bílskúrinn er timburhús með stálburð í þaki, byggður árið 1996 og skráður 49,0 m² að stærð.


Húsið skiptist þannig að á aðalhæð er forstofa, hol, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.  Í kjallara er eitt herbergi, geymsla og baðherbergi í smíðum.

Forstofa er með flísum á gólfi og þar eru góðir fataskápar.  Annar inngangur er norðurhlið hússins og þar er komið inn á stigapall á milli hæða.
Holið er með flísum á gólfi og þakglugga sem hleypir birtu inn í rýmið.
Eldhúsið er með nýlegri dökkri innréttingu með ljósum silestone bekkplötu.  Útgangur er í garð til suðurs út úr stofu.
Stofan er með flísum á gólfi og á milli eldhúss og stofu er rennihurð.
Herbergin í húsinu eru þrjú.  Hjónaherbergi er með flísum á gólfi og innaf því er rúmgott fataherbergi með góðu skápaplássi.  Hitt herbergið hæðinni er einnig með flísum á gólfi og lausum fataskáp sem fylgir með við sölu.  Þriðja herbergið er í kjallaranum, rúmgott herbergi með máluðu gólfi og gluggum á tveimur hliðum.
Baðherbergið er nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta með gleri, dökk innrétting með silestone bekkplötu og speglaskáp yfir, upphengt klósett, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahúsið er mjög rúmgott en það var áður eldhús.  Innréttingin er gamla eldhúsinnréttingin og þar er einnig bakaraofn og helluborð.  
Í kjallara er baðherbergi í smíðum en búið er að flísaleggja gólfi og í sturtu bæði gólf og veggi, og koma fyrir lögnum.  Í kjallari er einnig geymsla og tæknirými auk eins herbergis.  Kjallarinn er þannig uppgerður að lítið þarf til að hann gæti nýst sem útleigueining.
Geymslupláss er ágætt í húsin en auk geymslu í kjallara er gott geymslupláss í þvotthúsi.  Geymsluloft er yfir húsinu að hluta og uppá það er farið um lúgu í þvottahúsi.  Í garði er svo geymsluskúr.

Bílskúrinn er tvöfaldur og stendur stakstæður austan við íbúðarhúsið.  Á honum eru tvær innkeyrsluhurðir og ein gönguhurð.  Skúrinn er upphitaður í honum er rafmagn og rafhleðslustöð.

Lóðin er snyrtileg.  Framan við húsið er grasflöt og sunnan við húsið er sólpallur þar er heitur pottur og geymsluskúr.  Perlumöl er í lóðinni austan við húsið á milli bílskúrs og húss.  Síðasta haust var steyptur lóðarveggur á lóðarmörkum við suður-austurhorn lóðarinnar.

Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á síðustu árum:
- Öll efri hæðin (að þvottahúsi undanskildu) hefur verið tekin í gegn.  Gólfhiti var settur í allt og nýjar flísar, eldhús og bað var endurnýjað, nýr loftapanell settur og innfelld lýsing.  Raflagnir hafa verið endurnýjaðar sem og rofar tenglar.
- Útgönguhurð úr eldhúsi út í garð var endurnýjuð, drenað var með austurhlið hússins og nýr gluggi með björgunaropi  settur á austurhlið í kjallara.
- Herbergi var útbúið í kjallara, gólf grafið niður og ný gólfplata steypt með gólfhita í.
- Hitaveitugrind endurnýjuð, ný gólfhitakista og ljósleiðari.

Húsið er skemmtilega staðsett og úr því er gott útsýni.  Aðkoma að húsinu er bæði frá Helgamagrastrætinu en einnig frá hliðargötu sem er á milli húsa númer 36 og 34, og þaðan er aðkoman að bílskúr og bílastæðum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/06/201841.700.000 kr.57.000.000 kr.202.3 m2281.759 kr.
12/09/201330.400.000 kr.33.500.000 kr.202.3 m2165.595 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1996
49 m2
Fasteignanúmer
2147300
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.650.000 kr.
Fasteignasalan Hvammur
www.kaupa.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorrasalir 17
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Þorrasalir 17
Þorrasalir 17
201 Kópavogur
116.3 m2
Fjölbýlishús
413
850 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Vanabyggð 2b
Skoða eignina Vanabyggð 2b
Vanabyggð 2b
600 Akureyri
166.8 m2
Raðhús
514
503 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Melabraut 12
Skoða eignina Melabraut 12
Melabraut 12
170 Seltjarnarnes
95.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
1040 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 10 - íbúð 201
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 12:00-12:30
Tryggvagata 10 - íbúð 201
800 Selfoss
118.6 m2
Fjölbýlishús
423
842 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin