Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2026

Túngata 41

EinbýlishúsSuðurland/Eyrarbakki-820
186.4 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.000.000 kr.
Fermetraverð
520.386 kr./m2
Fasteignamat
72.600.000 kr.
Brunabótamat
83.700.000 kr.
Mynd af Rúnar Örn Rafnsson
Rúnar Örn Rafnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Fasteignanúmer
2200300
Landnúmer
166055
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Rúnar Örn fasteignasali kynnir Túngötu 41, Eyrarbakka. 
Rúmgott  og vel skipulagt einbýlishús sem hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er samtals 186,4 m² á 885 m² lóð, með rúmgóðum bílskúr og stórum suður-palli, gróinni lóð og gróðurhúsi.

Eignin er samtals 186,4 m², þar af er íbúðarhlutinn 129,3 m² og bílskúrshlutinn 57.1 m². Bílskúrshlutinn skiptist í 37,8 m² bílskúr og 8,1 m² herbergi með WC og sérinngangi / útgangi út í garð. Yfir hluta bílskúrsins er að auki 16,8 m² geymsluloft, sem er utan skráðrar fermetratölu. Í íbúðarhlutanum eru fjögur svefnherbergi. Að auki er 8,1 m² herbergi í bílskúrshlutanum, með sér WC og sérinngangi frá bakgarði, gólf flísalögð.


Húsið var upphaflega byggt árið 1980. Bílskúrshlutinn var fullgerð árið 2012 og í kjölfarið, um 2014, var  íbúðarhúsið endurnýjað. Skipulagi var breytt, skipt um allar lagnir hússins, rafkerfi endurnýjað og allar innihurðir, innréttingar og gólfefni endurnýjuð. Eldhús, baðherbergi og þvottahús voru jafnframt endurgerð.

Nánari lýsing
Forstofa / anddyri er rúmgóð og flísalögð, með hita í gólfi og stórum og góðum skápum.
Stofa / borðstofa / eldhús. Bjart og rúmgott alrými, samtals um 44 m², þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast vel saman. Úr stofu er gengið beint út á stóran suðurpall. Innbyggt eldstæði og innrétting á sjónvarpsvegg. Harðparket á gólfum. Eldhúsið er rúmgott með góðri innréttingu og Siemens-heimilistækjum. Stór eyja með helluborði veitir gott vinnu- og geymslupláss. Hiti í gólfi.
Gangur er parketlagður og er með innbyggðum bókahillum. Engir þröskuldar eru í dyrum frá gangi.
Svefnherbergin eru fjögur í húshlutanum. Stærsta herbergið er rúmgott hjónaherbergi og önnur herbergi henta vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherberbergi er rúmgott og flísalagt, með hita í gólfi. Þar er góð vaskinnrétting, handklæðaofn, hornbaðkar, rúmgóð sturta og upphengt salerni.
Þvottahús flísar á gólfi, góð innrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúrinn / bílskúrshlutann.

Bílskúr og herbergi + WC
Bílkúrshlutinn er samtals 57,1 m². Sjálft bílskúrsrýmið er 37,8 m², rúmgott og vel búið með góðu vinnu- og geymsluplássi. Þar er stór rafdrifin innkeyrsluhurð, um 3,6 m breið, epoxy á gólfi, vinnuborð, vaskur og fjöldi raftengla. Yfir hluta bílskúrsins er 16,8 m² geymsluloft, sem er utan skráðrar fermetratölu.
Inn af bílskúr er 8,1 m² herbergi. Við herbergið er lítið WC og sérinngangur frá bakgarði. Þetta gefur fjölbreytta möguleika á nýtingu, t.d. sem gestaherbergi, vinnuaðstöðu, eða herbergi fyrir eldri börn.

Lóð og útisvæði
Lóðin er 885 m², gróin og skjólgóð. Við suðurhlið hússins er stór sólpallur með heitum potti. Á lóðinni er einnig 7,6 m² garðskúr, með rafmagni og um 15 m² gróðurhús frá 2023. Lítill krakkakofi er einnig í einu horni garðsins. Góð og opin aðkoma er að húsinu með litlum palli við inngang og tvö stór, steinlögð bílastæði eru fyrir framan bílskúrinn.


Hér er um að ræða gott og mikið endurnýjað einbýlishús á góðum stað á Eyrarbakka. Húsið sjálft, auk bílskúrshlutans, býður upp á mikla möguleika varðandi notkun sökum stærðar og fjölda herbergja. Lóðin er einnig stór og gróin og sólpallur, heitur pottur og skemmtilegt gróðurhús í sólríkum bakgarði gera gott hús enn betra.


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/03/201932.400.000 kr.44.000.000 kr.186.4 m2236.051 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1980
57.1 m2
Fasteignanúmer
2200300
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.700.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkihæð 12
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Birkihæð 12
Birkihæð 12
210 Garðabær
188.5 m2
Raðhús
422
Fasteignamat 148.400.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Aratún 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Aratún 14
Aratún 14
210 Garðabær
196.3 m2
Einbýlishús
714
891 þ.kr./m2
175.000.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187.3 m2
Einbýlishús
413
747 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 2
Opið hús:13. sept. kl 14:00-14:30
Hagasel 2.jpg
Skoða eignina Hagasel 2
Hagasel 2
109 Reykjavík
200 m2
Raðhús
625
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin