NÝTT Á SKRÁ:
Valborg - fast. og ráðgj. ehf kynnir í einkasölu fjölskylduíbúð með 3 svefnherbergjum við Asparholt 2, 225 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 227-2209 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofu/stofu, baðherbergi og þvottahús.Sérinngangur af svölum.Birt stærð eignarinnar er 96 m².Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I: Rúmgott svefnherbergi. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II: Minna svefnherbergi, stúkað af frá stofu. Fataskápur. Harðparket og flísar á gólfi.
Eldhús: Hvít u-laga innrétting með góðu skápaplássi. Gaseldavél og bakaraofn. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt stofa og borðstofa opin við eldhús. Útgengt út á góðar svalir til vesturs.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu.Tvöfaldur vaskur og góður skápur. Upphengt klósett, baðkar með sturtu og sturtugleri.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu og hillum.
Geymsla: Geymsla er innan íbúðar og er notuð sem skrifstofa í dag.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Eignin Asparholt 2 er skráð sem hér segir skv. HMS: Eign merkt 010202, fnr. 227-2209, birt stærð 96 m².Innra skipulag eignarinnar hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum.
Frábær staðsetning í fjölskylduvænu hverfi innan Álftaness, steinsnar frá leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug.
Stutt í fallega náttúru og strandlengjuna á Álftanesi.
Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.