Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Akurgerði 10, 190. Vogar.
Um er að ræða glæsilegt 246,8 fm. einbýlishús með bílskúr með fallegu sjávarútsýni á góðum stað í Vogum.
Eignin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og bílskúr.
Einstök hönnun, sérsmíðaðar innréttingar og aukin lofthæð, hvítur marmari á öllum gólfum, gólfhiti. Mahony gluggar og hurðar í öllu húsinu.
Nánari lýsing:
Aðkoman er snyrtileg, stórt hellulagt upphitað bílaplan.
Komið er inn í anddyri með marmaraflísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er rúmgott með marmara á gólfi.
Stofa / Setustofa hefur marmara á gólfi, mikil lofthæð og stórir gluggar sem gera hana bjarta og fallega,með stórkostlegu sjávarútsýni, þar er stór arinn, og sjónvarpsherbergi.
Borðstofa er rúmgóð með marmara á gólfi, úr borðstofu og stofu er hurð út á verönd.
Eldhús er með marmara á gólfi, vönduð sérsmíðuð innrétting með miklu skápaplássi og góð eldhústæki, steinn á borðum. Borðkrókur er í eldhúsinu.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, og fataskápar í öllum. Hjónaherbergi er rúmgott, þar er hurð út á verönd.
Baðherbergi I hefur marmara á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sérsmíðuð innrétting, baðkar, stór sturta og hurð út á verönd.
Baðherbergi II er innaf einu af barnaherberginu og hefur marmara á gólfi, upphengt salerni, sérsmíðaða innréttingu og sturtu.
Þvottahús hefur marmara á gólfi, stór innrétting með miklu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílgeymsla er tvöföld og hefur flísar á gólfi, bílskúrshurð með rafmagnsopnun og geymsluloft. Gluggar eru í bílskúrnum sem snúa út í norður hluta lóðar. Búið er að útbúa herbergi í öðrum helmingi af skúrnum.
Lóð er afgirt og tyrft með stórri veröndin að aftan, fallegur viðarpallur með heitum pott og stórkostlegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið es@es.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð