** Opið hús fimmtudaginn 25. júní frá kl. 16:30 til 17:00 - Ásakór 10 íbúð 102 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með stórri timburverönd ásamt bílskúr og stæði í lokaðri bílageymslu við Ásakór 10 í Kópavogi. Eignin er skráð 165,9 m2 þar af íbúð 115,7 m2 og bílskúr 50,2 m2. Bílstæði merkt B08 í bílageymslu fylgir eigninni. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu. Bílskúrinn er staðsettur í bílakjallaranum. rúmgóður og er geymsla innaf honum.
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í nágrenninu eru grunnskóli, leikskóli, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.
Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem er stutt í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Frábært staðsetning í næsta nágrenni við grunnskóla, leikskóla, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Gangur er með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á stóra afgirta timburverönd í suðurátt/sólarátt.
Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottarvél í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fastaskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er innaf forstofu, með vinnuborði, vaski, skápum og snúrum, flísar á gólfi. Gott skápapláss.
Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni fyrir framan bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður með flísum á gólfi. Innrétting, rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, rafmagn, hiti og rennandi vatn.
Sérgeymsla með hillum er inn af bílskúr.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Verð kr. 109.900.000,-