Miklaborg kynnir: Björt og rúmgóð efri sérhæð við Safamýri 37, alls 174,3 fm með bílskúr. Eignin er í tvíbýlishúsi á gróinni lóð í friðsælum botnlanga. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og býður upp á fjögur svefnherbergi, 3 baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, stórar og sólríkar svalir og snyrtilegan bílskúr. Eitt svefnherbergið er í kjallara, með sérinngangi og baðherbergisaðstöðu — hentugt til útleigu eða fyrir gesti.
Frábær fjölskyldueign á eftirsóttum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, meðal annars grunnskóla, leikskóla og fjölbreytta íþróttastarfsemi.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Forstofa: Gengið er inn í snyrtilega teppalagða forstofu með stiga upp á efri hæð. Á stigapallinum er gengið inn í svefnherbergi og snyrtingu. Í svefnherberginu er góður fataskápur.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með eikarparketi og útgengi á stórar, sólríkar suðursvalir.
Eldhús: Nýlega endurnýjað eldhús með fallegri hvítri innréttingu, eikarborðplötu og nýlegum tækjum. Þar eru tveir ofnar, búrskápar og helluborð með gufugleypi. Flísar eru á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er walk-in-sturta, hvít baðinnrétting, stór spegill með lýsingu, upphengt salerni og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, eikarparketi og útgengi á austursvalir.
Svefnherbergi: Stórt og gott svefnherbergi með fataskáp og eikarparketi. Herbergið var áður tvö svefnherbergi en hefur verið sameinað í eitt rúmgott rými.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 7,8 m².
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Bílskúr: Snyrtilegur og rúmgóður bílskúr með glugga, 25,8 m².
Svefnherbergi í kjallara: Stórt svefnherbergi með sérinngangi og aðgangi að sameiginlegu baðherbergi með sturtuklefa. Herbergið hentar vel til útleigu og er með harðparketi á gólfi.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 174,3 | 136 | ||
108 | 167,6 | 119,9 | ||
103 | 132 | 134,9 | ||
300 | 157,3 | 149 | ||
200 | 164,3 | 144,9 | ||
104 | 88,2 | 98,9 |