*** EIGNIN ER SELD, MEÐ FYRIRVARA *** ER MEÐ AÐILA Á LISTA SEM LEITA AÐ SAMBÆRILEGRI EIGN Á ÞESSU SVÆÐI, SVO EF ÞÚ ÁTT SLÍKA EIGN OG VILT SELJA... HAFÐU ÞÁ SAMBAND Í S. 773-3532 EÐA ADALSTEINN@FSTORG.ISFasteignasalan TORG kynnir í sölu afar fallega 4 herbergja íbúð með sérinngang af svölum ásamt stæði í bílageymslu við Seilugranda 4 í vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða afar sjarmerandi og vel skipulagða íbúð í rólegu barnvænu hverfi á þessum vinsæla stað í vesturbænum. Eignin skiptist í rúmgott alrými sem rúmar auðveldlega borðstofu og stofu og opið eldhús með útgengi á skjólgóðar suðursvalir, eldhús með góðu skápaplássi og fallegri innréttingu með eldunareyju, svo telur eignin baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi, forstofu og geymslu sem er mjög rúmgóð inn af sameignargangi niðri, ekki talin inn í heildarfermetra eignar. Íbúðinni fylgir vel staðsett bílastæði í bílageymslu skráð sem hlutdeild í bílageymslu og er talin í heildarfermetra (30,9 m2). Öllu þessu til viðbótar er staðsetningin og allt umhverfið í kring frábær fyrir unga fjölskýldu, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, hreyfingu, íþróttir og fleira. Hafið samband við Aðalstein Bjarnason lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir nánari upplýsingar og skoðun.Eignin Seilugrandi 4 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 202-3870, birt stærð 110.6 fm, ásamt bílastæði í bílageymslu. Þar af íbúð skráð 79,7 m2 og hlutdeild í bílageymslu skráð 30,9 m2.Nánari lýsing og skipting eignarhluta:Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi er inn af forstofu með parket á gólfi. (var áður eldhús skv. teikningu)
Alrými sem rúmar vel bæði
setustofu og
borðstofu ásamt opnu
eldhúsi með eldunareyju. Parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Svalir eru afar hefðbundnar, skjólsælar og snúa í suður.
Eldhús er í alrými með fallega ljós sand/base litaða innréttingu með miklu skápa og skúffuplássi. Borðplötur með marmara áferð og hvítar subway flísar milli efri og neðri skápa. Skápar í efri og skúffur í neðri ásamt eldunareyju með hangandi gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur (í vegg) ásamt bökunarofni í vinnuhæð.
Baðherbergi er inn af alrými með nýlegum vaski, skáp og spegli. Baðkar er með handsturtu og skilrúmi með hertu gleri. Salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi er flísalagt hátt og lágt með ljósum flísum.
Hjónaherbergi (2) er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi (3) er með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla íbúðar er í kjallara í geymslugangi sameignar og nokkuð rúmgóð, ekki skráð inn í heildarfermetra, skv. HMS.
Sameign er öll snyrtileg og nýlegt teppi á stigagangi. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Bílastæði íbúðar í
bílageymslu er vel staðsett og gengið beint frá svölum við inngang íbúðar niður í bílageymslu.
Bílaplan er einnig við hliðina á húsi nr.2, með töluvert af bílastæðum.
Framkvæmdir undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2021 - Ný eldhúsinnrétting sett ásamt tækjum.
2021 - Ný sér rafmagnstafla fyrir eldhústæki sett upp í eldhúsi.
2021 - Íbúð máluð og settir nýjir gólflistar
2022 - Stofugluggi - Endurnýjun á gleri og þéttilistum. - Aðrir gluggar yfirfarnir.
2023 - Þak - Klæðning, pappi og rennur á norðurhlið.
2024 - Ytra byrði - Húsið málað og múrviðgert (Múr og mál)
2024 - Forstofa (bíslag) við aðalinngang endurnýjað - Hurð, gluggar, gler og þak.
Allar nánari upplýsingar veita:Aðalstein Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.
773-3532 /
adalsteinn@fstorg.isMargrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.