Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Skemmtileg íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Um er að ræða vel skipulagða 3ja herb íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi í Norðlingaholtinu.
Íbúðin er vel skipulögð og björt með útsýni frá svölum og stofu að Elliðavatni og fjallahringinn og til Esju úr svefnherbergjum.
*** Stæði í bílakjallara ***
*** Stutt í náttúru og skóla ***
Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með stórum fataskáp og flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Opið
eldhús með fallegri innréttingu og parketi
á gólfi.
Stofa með parketi á
gólfi og útgengi út á góðar svalir. Svalirnar eru rúmgóðar og snúa í suðaustur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og baðkari.
Rúmgott
hjónaherbergi með parketi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Viðarparket er fljótandi yfir alla íbúðina, nema á votrýmum eru flísar.
Í sameign er vagna og hjólageymsla.
Sérmerkt
geymsla í sameign sem er 7 fm
Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og fer lyfta úr bílakjallara beint fyrir framan íbúð, einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílakjallara. komið er tengi fyri rafhleðslustöð frá ON við bílastæðið.
Staðsetningin á Helluvaði er mjög góð m.t.t. fjarlægðar frá skóla. Engin gata í skóla og göngufæri ca. 3 mínútur. Fylkir (fimleikar, karate, Parkour, rafdeild) ásamt dansskóla ofl. í nágreninu.
Stutt í fallegar gönguleiðir s.s. við Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.