Opið hús:25. jan. kl 13:00-14:00
Skráð 24. jan. 2026

Grandavegur 47

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
144.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
654.934 kr./m2
Fasteignamat
101.500.000 kr.
Brunabótamat
66.410.000 kr.
Mynd af Hrannar Jónsson
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1989
Þvottahús
Geymsla 5.9m2
Lyfta
Garður
Bílskúr
Útsýni
Sameig. Inng.
60 ára og eldri
Fasteignanúmer
2024840
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Hæðir í húsi
10
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
7
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta, í jöfnu viðhaldi
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Yfirfarið 2017, skipt um eins og fólk vildi
Þak
Yfirfarið 2024, þakkantur allur nýr
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Yfirbyggðar vestursvalir
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Fallega þriggja herbergja útsýnisíbúð á 7. hæð við Grandaveg 47, 107 Reykjavík ásamt bílskúr.

Eignin er fyrir 60 ára og eldri.

Íbúðin er merkt 707, er skráð 114,8 fm að stærð, geymsla í kjallara til viðbótar 5,7 fm (skv. eignaskiptayfirlýsingu) og bílskúrinn er 24,2 fm. 

Einstaklega falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á sjöundu hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Grandaveg 47.

Íbúðin nýtur stórkostlegs útsýnis til allra átta, m.a. yfir Bessastaði, Reykjanes, Faxaflóa og alla leið upp á Snæfellsjökul á björtum dögum.

Nánari lýsing:
  • Eignin skiptist í tvö góð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og er sér þvottahús innan íbúðar.
  • Eldhúsið er stakstætt og vel skipulagt á tveimur gagnstæðum veggjum með eldhúskrók fyrir matarborð innst. Úr eldhúsglugga er fallegt og opið útsýni sem gefur góða birtu inn í herbergið.
  • Stórt og bjart alrými tengir saman sjónvarpsrými, stofu og borðstofu. Þar eru stórir gluggar til vesturs sem tryggja mikla birtu og gefa fallegt útsýni.
  • Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir á vesturhlið, og einnig er útgengt á svalirnar úr hjónaherbergi. Þar er gott að njóta síðdegissólar og kvöldútsýnis.
  • Parket er á öllum gólfum utan votrýma sem eru flísalögð.
  • Eigninni fylgir 24,2 fm stakstæður bílskúr á lóðinni, með heitu og köldu vatni ásamt rafmagni.

Sameign hússins er vel búin og þjónusta góð:
  • Á tíundu hæð er veislusalur með eldhúsi, snyrtingum, stórum sal og þaksvölum sem íbúar geta leigt. Þar er einstakt 360 gráðu útsýni í allar áttir.
  • Tvær lyftur eru í húsinu.
  • Í kjallara er sér geymsla (5,7 fm).
  • Á jarðhæð er sameiginlegur pallur með heitum potti og einnig aðstaða til íþróttaiðkunnar með tveimur búningsklefum, gufubaði og líkamsræktartækjum.
  • Útgengt er þaðan út á aflokaðan pall með heitum potti og garðhúsgögnum.
  • Í húsinu er húsvörður sem sér um umhirðu sameignar, garðhirðu, hálkuvarnir og minniháttar viðhald, sem tryggir íbúum þægilegt og áhyggjulaust umhverfi.
  • Skv. samtali við formann húsfélags er mikið lagt upp úr að ganga jafnt og þétt til verka í þau verkefni sem þarf að huga að á hverjum tíma.

Virkilega eiguleg eign, vel skipulögð, mikið útsýni og góðri sameign á vinsælum stað við sjávarsíðuna.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1988
2.4 m2
Fasteignanúmer
2024840
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.010.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
0.6 m2
Fasteignanúmer
2024840
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sörlaskjól 64
Bílskúr
Skoða eignina Sörlaskjól 64
Sörlaskjól 64
107 Reykjavík
115.3 m2
Fjölbýlishús
412
832 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1 íb 504
Bílastæði
Dugguvogur 1 íb 504
104 Reykjavík
117 m2
Fjölbýlishús
413
845 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Marteinslaug 1
Bílastæði
Opið hús:26. jan. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Marteinslaug 1
Marteinslaug 1
113 Reykjavík
131 m2
Fjölbýlishús
413
724 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 13
Bílastæði
Skoða eignina Mánatún 13
Mánatún 13
105 Reykjavík
105.1 m2
Fjölbýlishús
312
912 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin