Fasteignaleitin
Skráð 3. okt. 2025

Hjallahlíð 15

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
174.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
801.260 kr./m2
Fasteignamat
124.800.000 kr.
Brunabótamat
84.180.000 kr.
Mynd af Rúnar Þór Árnason
Rúnar Þór Árnason
Löggiltur fasteignasali
www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 1999
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2240733
Landnúmer
177369
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
óvitað/í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Helgafell fasteignasala kynnir glæsilegt og fjölskylduvænt 174,6 fm raðhús á tveimur hæðum, ásamt bílskúr, við Hjallahlíð 15 í Mosfellsbæ.

Um er að ræða vel skipulagt fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum, bjartri stofu, sjónvarpsholi og góðu geymsluplássi.  Við húsið er stór og afgirt suðurverönd með heitum potti, viðhaldslítill garður og hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. 

Staðsetningin hentar barnafjölskyldum sérstaklega vel, en skóli, leikskóli og sundlaug eru í næstu götu. Börn þurfa ekki að fara yfir umferðargötu á leið sinni í skólann. Golfvöllur Mosfellsbæjar er jafnframt í þægilegu göngufæri – eða stuttri akstursfjarlægð á golfbíl.


Eignin er skráð samtals 174,6 fm, þar af er neðri hæð 82,9 fm, efri hæð 66,6 fm og bílskúr 25,1 fm. Að auki er um 15 fm óeinangruð geymsla sem ekki er innifalin í birtum fermetrum.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, opið eldhús, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, bílskúr og geymslur.
Innréttingar, innihurðir og skápar eru sérsmíðuð og spónlögð með öl (elri), sem gefur heimilinu hlýlegan og vandaðan svip.

Neðri hæð
Á neðri hæð eru forstofa, gestasalerni, hjónaherbergi, þvottahús, eldhús, stofa og borðstofa.

Forstofa:
Góð og björt forstofa með rúmgóðum fataskáp. Endingargott vínylparket er á gólfi.

Gestasalerni:
Gestasalerni er á hægri hönd úr forstofu og er þar handlaug með snyrtilegri innréttingu.

Hjónaherbergi:
Rúmgott herbergi með góðum fataskápum og vínylparketi á gólfi, sem lagt hefur verið yfir eikarparket.

Þvottahús:
Rúmgott og vel útbúið þvottahús með flísum á gólfi. Þar er góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, skápar og ræstivaskur.

Stofa og borðstofa:
Bjart og rúmgott alrými. Á gólfi er slitsterkt 6 mm vínylparket sem lagt hefur verið yfir eikarparket. Úr stofu er útgengt á stóra og sólríka verönd til suðurs.

Eldhús:
Opið eldhús í góðum tengslum við stofu og borðstofu. Þar er vönduð og snyrtileg innrétting úr elri, gott skápa- og vinnupláss, flísar á milli efri og neðri skápa, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð og uppþvottavél.

Efri hæð
Á efri hæð eru rúmgott sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Gólfflötur efri hæðarinnar er um 12 fm stærri en skráðir 66,6 fm, þar sem hluti hennar er undir súð.
Stigi milli hæða er með vínylparketi sem lagt hefur verið yfir eikarparket. Undir stiganum er lítil og hentug geymsla.

Sjónvarpshol:
Þegar komið er upp á efri hæð tekur á móti rúmgott hol sem í dag er nýtt sem notalegt sjónvarps- og fjölskyldurými. Rýmið hentar einnig vel sem leiksvæði, vinnuaðstaða eða leskrókur.

Svefnherbergi:
Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi með vínylparketi á gólfum.

Baðherbergi:
Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, upphengdu salerni, baðkari, sturtuklefa og snyrtilegri innréttingu.
Við hlið baðherbergisins er lítil geymsla með hurð fram í holið.

Bílskúr og geymsla
Bílskúrinn er 25,1 fm og er þar vaskur með heitu og köldu vatni, innrétting, skápur, ljósleiðari og rafdrifinn bílskúrshurðaopnari.
Úr bílskúrnum er innangengt í um 15 fm óeinangraða geymslu sem ekki er innifalin í skráðri fermetratölu hússins.
Geymslan býður upp á mjög gott aukarými og úr henni er útgengt beint á pallinn og í garðinn.

Lóð og umhverfi
Við húsið er stór og falleg afgirt verönd til suðurs með heitum potti – sannkallaður sælureitur fyrir fjölskylduna á góðviðrisdögum.
Í framhaldi af veröndinni er hellulagður og viðhaldslítill garður með fallegum blómabeðum. Ekkert gras er á lóðinni og því þarf ekki að verja sumrinu í grasslátt.
Fyrir framan bílskúrinn er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.

Hjallahlíð 15 er fallegt, steypt og kvarshúðað fjölskylduhús á eftirsóttum og barnvænum stað í Mosfellsbæ.
Hér sameinast rúmgott húsnæði, gott skipulag, skjólgóður suðurgarður og einstök staðsetning fyrir fjölskyldufólk.

Eignin getur verið laus fljótlega.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1999
25.1 m2
Fasteignanúmer
2240733
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.830.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:23. ágúst kl 12:00-12:30
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
166.8 m2
Fjölbýlishús
423
1228 þ.kr./m2
204.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 72
Bílskúr
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Úugata 72
Úugata 72
270 Mosfellsbær
209 m2
Parhús
524
694 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut - sýni samdægurs 45A
Opið hús:25. ágúst kl 16:00-16:30
Hjallabraut - sýni samdægurs 45A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47 - sýni samdægurs
Opið hús:25. ágúst kl 16:00-16:30
Hjallabraut 47 - sýni samdægurs
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin