LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Gunnarssund 4 – einstaklega fallegt, sjarmerandi og vel skipulagt einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð í kjallara á eftirsóttum stað við Austurgötu í hjarta Hafnarfjarðar. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, samgöngur og fjölbreytt mannlíf.
Húsið er byggt árið 2004 og hannað með það að markmiði að falla vel inn í umhverfi gamla bæjarins. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign með góðri lofthæð á efri hæð, fallegu alrými og skemmtilegum útisvæðum. Séríbúð í kjallara býður upp á möguleika til útleigu eða sem hluta af heimili.
Birt stærð eignarinnar er 225,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Eignin er vel skipulögð og skiptist á þrjár hæðir með góðu flæði milli rýma og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Á aðalhæð er forstofa, tvö svefnherbergi, vinnuherbergi, baðherbergi og gestasalerni, þvottahús og geymsla / fataherbergi. Á efri hæð er bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, auk útgengis á stórar yfirbyggðar svalir. Í kjallara er séríbúð með sérinngangi, forstofu, stofu og eldhúsi í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi, geymslum og útgengi í garð.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing aðalhæð (77,7 fm)
Forstofa, rúmgóð með fataskáp, flísar á gólfi.
Geymsla/fataherbergi innaf forstofu, flísar á gólfi.
Gestasnyrting með upphengdu salerni og innréttingu, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita.
Hjónaherbergi með fataskápum og opnum hillum, parket á gólfi.
Svefnherbergi, rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari og sér hlaðinni sturtu, upphengt salerni, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita.
Hol með góðri vinnuaðstöðu, flísar á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og góðu skápaplássi, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Nánari lýsing efri hæð (64,7 fm)Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með stórum gluggum og mikilli lofthæð, parket á gólfi og útgengi á svalir til suðvesturs.
Eldhús með ljósri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og stór Smeg eldavél, mikið skápapláss og góð vinnuaðstöðu, parket á gólfi.
Nánari lýsing jarðhæð (83,1 fm) - sérinngangur neðan frá lóð ásamt innangengi frá efri hæðum.
Forstofa/hol með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými, bjart og vel skipulagt, flísar á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla, rúmgóð með glugga, möguleiki á að útbúa svefnherbergi.
Geymsla II lítil við stigann.
Yfirbyggt forrými með útgengi í skjólgóðan garð með hellulagðri verönd. Útigeymsla innaf forrými,
ekki skráð í fermetratölu. Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.