Fasteignaleitin
Skráð 12. sept. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
127 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
613.386 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
204260624
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd, svalir og þakverönd.
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS VIÐ HINN VINSÆLA LO ROMERO  GOLFVÖLL*

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð einbýlishús á tveimur hæðum í fyrstu línu við hinn vinsæla  Lo Romero golfvöll, stutt frá Pilar de la Horadada, snyrtilegum spænskum bæ ca. 60 mín akstur í suður frá Alicante. Góð verönd út frá stofu og sér garður með einkasundlaug. Flott þakverönd með útieldhúsi. Bílastæði inni á lokaðri lóð.  Um 15 mín akstur á ströndina. Útsýni yfir hinn fallega Lo Romero 18 holu golfvöll og auk þess eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas.  Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. 
Húsin eru vel skipulögð með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum.  AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI.

FRÁBÆRT VERÐ
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Svefnherbergi og baðherbergi, góðir skápar.
Út frá stofunni er góð verönd og sér garður með einkasundlaug.
Efri hæð:
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Svalir og gengið upp á þakverönd. Þar er flott aðstaða til sólbaða og útieldhús.
Bílastæði inni á lokaðri lóð. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Rafdrifnar gardínur.
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja, ásamt þvottavél.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Draumaeign golfarans.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
519.900 Evrur. (ISK 77.900.000) + kostn. við kaupin.

Húsin eru 127 fm. + 54 fm þakverönd.
Tilbúin til afhendingar í júlí 2025.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
FASTEIGN Á SPÁNI - LJÚFUR LÍFSSTÍLL

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

LO ROMERO
golfvöllurinn er í flokki vinsælustu golfvallanna á svæðinu. Hann er nokkuð nýlegur, opnaður árið 2008, og er því tæknilega vel hannaður. Fyrri 9. holurnar  falla nokkuð vel inn í náttúrulegt landslagið, en seinni 9. eru meira manngerðar og bjóða upp á ýmsar leiðir að glíma við.
Staðsetning og umhverfi vallarins er notaleg og falleg, gróið og stutt frá strandlengjum Costa Blanca og Costa Calida og er völlurinn umvafinn appelsínu og sítrónutrjám.
LO ROMERO er hannaður af þeim Jorge Gallén og Enric Soler, par 72 og um 6.060 metra langur. Hann reynir á fjölbreytta hæfileika kylfingsins og flestar kylfurnar í pokanum, og gerir það hann skemmtilegan og krefjandi, en samt þægilegan og gefandi. Völlurinn hentar bæði þeim sem eru stutt komnir í golfinu, og eins þeim sem lengra eru komnir.
Eftirminnilegasta hola vallarins er án efa 18. holan og og það er góð tilfinning í lok leiks að ná inn á eyjuna og heyra boltann rúlla ofan í holuna. Takist það ekki langar manni strax til að koma aftur og reyna við þessa holu á ný.


Eiginleikar: golf, útsýni, einkasundlaug, sér garður, þakverönd, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Lo Romero,


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
204260624

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
SPÁNAREIGNIR - Los Montesinos
Spánn - Costa Blanca
157 m2
Einbýlishús
433
486 þ.kr./m2
76.300.000 kr.
Skoða eignina Spánn-La Finca Resort
Spánn-la Finca Resort
Spánn - Costa Blanca
136.6 m2
Einbýlishús
423
585 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Spánn-La Finca Golf
Spánn-la Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
133.6 m2
Einbýlishús
423
595 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
131 m2
Einbýlishús
423
582 þ.kr./m2
76.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin