Fasteignaleitin
Skráð 9. mars 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
107 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
52.400.000 kr.
Fermetraverð
489.720 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
10090324
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góð verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á FRÁBÆRU VERÐI*

Vel hönnuð og flott einbýlishús á einni hæð á góðum stað í San Miguel de Salinas, skemmtilegum spænskum bæ með sál og sjarma. Ca. 50 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Göngufæri í miðbæ San Miguel de Salinas, þar sem er að finna fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Vistabella, La Finca og ótal fleiri. 

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

FYRSTI ÁFANGI VAR AÐ KOMA Í SÖLU, OG ÞVÍ HÆGT AÐ VELJA GÓÐAR STAÐSETNINGAR.


LÝSING EIGNAR:
Rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu rými.
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Gott aðgengi að sér garði þar sem möguleiki er að hafa einkasundlaug.
Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Græn svæði sem bjóða upp á skemmtilega útiveru allt árið, enda skín sólin allt að 300 daga á ári.

Verð miðað við gengi 1Evra = 150ISK:
Einbýlishús á einni hæð, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi:
Verð frá 349.900 Evrur  (52.400.000 ISK) + kostnaður við kaupin ca. 13%
Íbúðarrými: 107 fm.
Verönd: 12 fm.
Þakverönd: 87 fm.
Sér garður 197-227 fm.

Eignirnar eru til afhendingar í apríl/maí 2025.

Öll þjónusta í næsta nágrenni og auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í ca. 15 mín. akstursleið og ströndin í ca. 20 mín. akstursleið frá San Miguel de Salinas.

Hér er um að ræða góðar eignir á frábærum og fjölskylduvænum stað á frábæru verði.  Góð kaup miðað við stærð, staðsetningu og frágang.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendu garð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og  öll  þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl.
Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
 
Það er leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia.
Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu.
San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins  spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi.
San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!



Eiginleikar: ný eign, sér garður, þakverönd, einkasundlaug, air con, bílastæði,
Svæði: Costa blanca, San Miguel de Salinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
104 m2
Einbýlishús
423
496 þ.kr./m2
51.600.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
101 m2
Fjölbýlishús
322
527 þ.kr./m2
53.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Spánn - Costa Blanca
106 m2
Einbýlishús
433
509 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
140 m2
Einbýlishús
433
374 þ.kr./m2
52.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache