Miklaborg kynnir: Endaraðhús í hinu eftirsótta Hlíðahverfi Mosfellsbæjar þaðan sem er örstutt í Lágafellsskóla, Sundlaugina og World Class og þægileg aðkoma frá Vesturlandsvegi. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og pallur að framanverðu hefur nýst vel á góðum sumardögum. Bílskúr er aðskilinn frá húsi og er skráður 33,6 fm að stærð. Húsið var byggt árið 2000 og hefur eldhús, baðherbergi, gólfefni og allir ofnar verið endurnýjaðir á undanförnum árum. Einnig var þak endurnýjað sumarið 2025. Garður er í góðri rækt með fallegum þéttum víðisrunna ásamt fjölskrúðugum rifsberjarunna bakatil og gullregn sem plantað var fyrir nokkrum árum er nú þegar farið að skarta sínu fegursta. Virkilega notaleg og fjölskylduvænt heimili.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í S: 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Ljósar fallegar flísar á gólfi, fataskápur með hengi og hillum.
Hol: Rúmgott með góðri lofthæð parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa með gluggum er vísa í suður þaðan sem Úlfarsfellið blasir við, parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað að miklu leyti m.a. sett stór eldunareyja með span helluborði og innbyggðum háf í borði. Gott vinnupláss og ísskápur og innbyggð uppþvottavél sem fylgir með. Útgengt er út í garð frá eldhúsinu, kjörið fyrir grillið. Flísalagt gólf.
Svefnherbergi: Upprunalega þrjú talsins en eitt barnaherbergjanna hefur verið breytt í fataherbergi sem er innangengt í frá hjónaherbergi en breyta mætti þessu fyrirkomulagi í upprunalegt horf. Annað minna barnaherbergi sem snýr út að framanverðu.
Þvottahús: Þægilega stórt með skápainnréttingarstæðu fyrir þvottavél og þurrkara og mikið skápapláss fyrir ofan og neðan vélar. Nægt pláss fyrir aukaískáp t.d. Flísar á gólfi.
Bílskúr: 33,6 fermetrar að stærð en innangengt er í hann bakatil og svo er bílskúrshurð að framan. Hleðslustöð er á bílskúr að utanverðu sem fylgir með.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um vinsældir þessarar götu út frá staðsetningu þess en hér er um að ræða gott hús sem hefur töluvert verið endurnýjað m.a. skipt um gólfefni, ofnar endurnýjaðir sem og innréttingar og tæki eldhúss, baðherbergis og nú síðast var skipt um þakjárn árið 2025.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 05/10/2015 | 41.200.000 kr. | 50.900.000 kr. | 158.8 m2 | 320.528 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
112 | 169,4 | 143 | ||
113 | 159,5 | 114,9 | ||
415 | 145 | 48,9 | ||
270 | 100,9 | 86,8 | ||
105 | 164,4 | 143,9 | ||
230 | 158,1 | 69,9 |