LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og mikið endurnýjaða 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum í litlu fjölbýli. Eignin var 3ja herbergja en búið er að bæta við einu herbergi. Góð staðsetning þar sem að það er örstutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, heilsurækt, heilsugæslu og skemmtilegar gönguleiðir. Sérmerkt stæði á lóð.Eignin skiptist í forstofu, hol og gang með fataskápum, opið eldhús í báða enda, stofu með útgengi út á svalir, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu á jarðhæð.
Stærð eignar er 91,6 fm. auk þess er geymsla sem ekki er inni í fermetratölu ca. 4,5 fm. þannig að samtals eru heildar fm. ca.95-96 fm.Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi og hvítur fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með ljósgrárri borðplötu, háfi og bakaraofni í vinnuhæð. Opið er í báða enda.
Stofa: Parketlögð, björt með góðum gluggum. Gengið er út á svalir út frá stofu sem snúa í suður.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og góður fataskápur opinn að hluta með skúffum og upphengi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og hvítur fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara ásamt háum skáp í kring, baðkar með sturtu og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Er með máluðu gólfi ca. 4,5 fm.
Bílastæði: Er sérmerkt á lóð.
Virkilega björt og vel hönnuð íbúð með glugga á 3 vegu.Eignin hefur fengið gott viðhald:
Íbúð:
2025- Baðherbergi flísalagt og ný innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
2024- Fataskápum skipt út í hjónaherbergi.
- Skipt um allt gler og gluggalista í íbúðinni fyrir utan 3 rúður í útidyrahurð.
- Skipt var um þéttikant í öllum opnanlegum fögum og svalahurð.
- Gluggar málaðir að utan.
2021- Skipt um öll gólfefni og skápa í forstofu, á gangi og barnaherbergi.
- Allar innihurðar endurnýjaðar og skipt um alla rofa og tengla.
- Skipt um salerni, innréttingu, handklæðaofn, vask og blöndunartæki.
- Skipt um eldhúsinnréttingu, eldhústæki og blöndunartæki.
Utanhúss:
2024 Svalagólf íbúða efstu hæðar slípuð, flotuð og sílanborin.
2022 Skipt um gler þar sem þörf var á í stigagangi.
2021 Skipt um þakrennur.
2018 Hús múrviðgert og málað.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.