Fasteignaleitin
Skráð 6. sept. 2024

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
170 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
70.900.000 kr.
Fermetraverð
417.059 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
210060926
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN* *FRÁBÆRT VERÐ FYRIR NÝTT EINBÝLISHÚS Á ÞESSUM FALLEGA STAÐ* *STÓRFENGLEGT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN* *TILBÚIN TIL AFHENDINGAR*

Vel staðsett og fallegt, vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum  á frábærum stað við hinn glæsilega La Finca golfvöll.  Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, verönd og góður sér garður með einkasundlaug og auk þess góðar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð. Frábært útsýni.
Sér bílastæði inni á lokaðri lóð. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Gott skipulag og frábært verð. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.


Nánari lýsing:

Komið er inn í gott alrými og skiptist það í gott eldhús og stofu/borðstofu með góðu aðgengi að góðum sér garði me einkasundlaug. Tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð er hjónasvíta með sér baðherbergi og útgengi út á rúmgóðar þaksvalir með frábæru útsýni yfir La Finca golfvöllinn og fallegri fjallasýn.
Sérlega vel staðsett og fallegt hús í göngufæri við verslanir og veitingastaði. 

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í göngufæri við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir. Stutt í verslunar og þjónustukjarna á La Finca, og svo einnig í skemmtilega litla spænska bæi eins og Ciudad Quesada og Algorfa. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. 

Frábær eign á góðu verði fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð  489.000 Evrur (70.900.000 ISK)
Eignin er tilbúin og til afhendingar afhendingar strax.
Húsið er 113 fm
Verönd 57 fm
Samtals 170 fm. + stór garður með einkasundlaug.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka til að auðvelda kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, þakverönd, sundlaugargarður, air con, golf, útsýni, 
Svæði: Costa Blanca, La Finca, La Finca Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
210060926

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
77 m2
Fjölbýlishús
211
1038 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 2 íb404
Bílastæði
Áshamar 2 íb404
221 Hafnarfjörður
94.1 m2
Fjölbýlishús
2
840 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 2 íb106
Bílastæði
Áshamar 2 íb106
221 Hafnarfjörður
110.2 m2
Fjölbýlishús
42
759 þ.kr./m2
83.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin