Einbýlishús á einni hæð með bílskúr á einstakri útsýnislóð úr landi Mógils á Svalbarðsströnd - samtals 185,4 m² og þar af telur bílskúr 34,6 m²
Íbúðarhúsið er steypt, byggt árið 1966 og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, salerni, sólstofu/sólskála, svefnherbergisgang/hol, þrjú svefnherbergi, þvottahús og búr. Bílskúrinn er hlaðinn/holsteinn og með skráð byggingarár 1972.
Forstofa/aðalinngangur er með flísum á gólfi og úr henni er opið inn á gang og stofu. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og úr stofu er farið út í sólskála til suðurs. Í stofu er arin. Eldhús er með dúk á gólfi og upprunalegri sérsmíðaðri "retro" innréttingu. Baðherbergið er upprunalegt og þar eru flísar á gólfi, bæði sturta og baðkar og tveir vaskar. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Salerni er innaf forstofu og þar eru flísar á gólfi og handlaug. Svefnherbergin eru þrjú, en voru áður fjögur. Tvö herbergi hafa verið sameinað í eitt rúmgott herbergi en auðvelt að breyta því til baka. Teppi er á einu herberginu og dúkur á hinum. Skápar eru í öllum herbergjum. Þvottahús er með flögutexi á gólfi og nýtist einnig sem "bakdyrainngangur". Búrgeymsla er innaf þvottahúsi.
Bílskúrinn er stakstæður, hlaðinn úr holsteini og án vatns og rafmagns. Innaf skúrnum er geymsla og þaðan er útgangur í garð.
Lóðin stendur hátt og einstakt útsýni er frá húsinu. Lóðin er afgirt og gróðursæl.
Annað - Eignin er laus til afhendingar í ágúst 2026 - Ljósleiðari er ekki kominn inn en er í jörðu skammt frá íbúðarhúsinu. - Lokað ofnakerfi. - Húsið er að stórum hluta upprunalegt, en vel umgengið og vel viðhaldið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gluggar upprunalegir en gler hefur verið endurnýjað
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita, lokað ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Húsið er að stærumst hluta upprunalegt. Eirlagnir eru að einhverjum ofnum.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Einbýlishús á einni hæð með bílskúr á einstakri útsýnislóð úr landi Mógils á Svalbarðsströnd - samtals 185,4 m² og þar af telur bílskúr 34,6 m²
Íbúðarhúsið er steypt, byggt árið 1966 og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, salerni, sólstofu/sólskála, svefnherbergisgang/hol, þrjú svefnherbergi, þvottahús og búr. Bílskúrinn er hlaðinn/holsteinn og með skráð byggingarár 1972.
Forstofa/aðalinngangur er með flísum á gólfi og úr henni er opið inn á gang og stofu. Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og úr stofu er farið út í sólskála til suðurs. Í stofu er arin. Eldhús er með dúk á gólfi og upprunalegri sérsmíðaðri "retro" innréttingu. Baðherbergið er upprunalegt og þar eru flísar á gólfi, bæði sturta og baðkar og tveir vaskar. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Salerni er innaf forstofu og þar eru flísar á gólfi og handlaug. Svefnherbergin eru þrjú, en voru áður fjögur. Tvö herbergi hafa verið sameinað í eitt rúmgott herbergi en auðvelt að breyta því til baka. Teppi er á einu herberginu og dúkur á hinum. Skápar eru í öllum herbergjum. Þvottahús er með flögutexi á gólfi og nýtist einnig sem "bakdyrainngangur". Búrgeymsla er innaf þvottahúsi.
Bílskúrinn er stakstæður, hlaðinn úr holsteini og án vatns og rafmagns. Innaf skúrnum er geymsla og þaðan er útgangur í garð.
Lóðin stendur hátt og einstakt útsýni er frá húsinu. Lóðin er afgirt og gróðursæl.
Annað - Eignin er laus til afhendingar í ágúst 2026 - Ljósleiðari er ekki kominn inn en er í jörðu skammt frá íbúðarhúsinu. - Lokað ofnakerfi. - Húsið er að stórum hluta upprunalegt, en vel umgengið og vel viðhaldið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.