Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

Hrísmóar 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
148.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
699.663 kr./m2
Brunabótamat
67.850.000 kr.
Byggt 1985
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20707792
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

Fallega og rúmgóða fjögurra til fimm herbergja 148,4 fm íbúð ásamt bílskúr við Hrísmóar 9 í Garðabæ. Íbúðin er vel skipulögð með þremur rúmgóðum svefnherbergjum. Bílskúrinn er stór, tvískiptur og er aftara rýmið innréttað sem tómstundaherbergi með harðparketi á gólfi, fataskáp og sér inngangi. Eigninni tilheyrir sér bílastæði framan við bílskúr sem staðsettur er næst innganginum, auk þess er annað bílastæði sérmerkt af húsfélagi. Virkilega skemmtileg eign á frábærum stað miðsvæðis í Garðabæ. 

Íbúðin er 115,8 fm og bílskúrinn er 32,7 fm, samtals 148,4 fm. 
Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, sólskála og bílskúr með geymslu. Tvennar svalir. 

✅ Stór og björt íbúð ásamt tvískiptum bílskúr
✅ Þrjú rúmgóð svefnherbergi
✅ Aflokaður sólskáli og tvennar svalir 
✅ Frábær staðsetning miðsvæðis í Garðabæ


Nánari lýsing
Anddyri er með fataskáp, harðparket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með góðum neðri skápa innréttingum, innbyggðri uppþvottavél og eldavél, steinn á bekkjum og flísar á gólfi. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð og eru fataskápar í tveimur herbergjum, harðparket á gólfi. Eitt herbergið gæti nýst skrifstofa og er þaðan útgengi á svalir. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu með þvottavél og þurrkara sem fylgir, speglaskáp, handklæðaofni og góðri innréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er upphitaður og með vaski með heitu og köldu vatni, rafdrifinni bílskúrshurð og máluðu gólf. Fyrir innan er geymsla sem innréttuð er sem tómstundaherbergi með harðparketi á gólfi, ofni og faraskáp og sér inngangi. 

Staðsetning
Eignin er frábærlega vel staðsett miðsvæðis í Garðabæ, stutt frá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og allri helstu þjónustu að Garðatorgi þar sem staðsett er fjölbreytt úrval verslunar og þjónustu.

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is

Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraungata 7 (303)
Bílastæði
Hraungata 7 (303)
210 Garðabær
116.6 m2
Fjölbýlishús
312
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Fálkahlíð 3
102 Reykjavík
155.8 m2
Fjölbýlishús
413
834 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Hraungata 7 (202
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 5 (302)
Bílskúr
Efsta hæð
Hraungata 5 (302)
210 Garðabær
168.8 m2
Fjölbýlishús
413
1000 þ.kr./m2
168.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin