Fasteignaleitin
Skráð 27. jan. 2026

Stórholt 33

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
135.4 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
922.452 kr./m2
Brunabótamat
71.300.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20118732
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali s. 777-2882  kynna glæsilega sérhæð með aukaíbúð í risi í fallegu húsi eftir Sigvalda Thorsteinsson.
Stórholt 33, íbúð merkt 02-01 er skrá 135.4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS.  Þar af er íbúð á 2. hæð er skráð 108,2 fm. og íbúð í risi er skráð 18,6 fm. (gólfflötur stærri - líklega nær 60 fm)
Nánari lýsing eignarinnar:
Sér inngangur er inn í forstofu og þaðan inn í aðal íbúðina eða áfram upp stiga í risíbúð.
Aðalíbúð hefur verið algerlega endurnýjuð og opnuð á undanförnum árum á vandaðan og glæsilegan máta.  Þar eru nú tvö svefnherbergi, opið eldhús og stofa í fallegu alrými.
Komið er inn í opið og rúmgott hol sem tengir önnur rými íbúðarinnar. 
Rúmgott svefnherbergi  með góðum glugga.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum meðfram heilum vegg, sameinað úr herbergi og rými sem áður var eldhús, auðvelt væri að breyta aftur í tvö herbergi.
Eldhúsið er nú í opnu og stóru alrými sem flæðir saman eldhús, borðstofa og stofa með gluggum bæði til norðurs og suðurs. Eldhúsinnrétting  með innfelldri uppþvottavél og ísskáp og góðu bekkplássi.
Stofan er björt og rúmgóð með gluggum mót suðri en þaðan er gengið út á suðursvalir.
Baðherbergi er glæsilega uppgert með stórum walk-in sturtuklefa, upphengdi salerni og handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi.
Gólfhiti er á baði,holi, stóra herbergi og í forstofu að stiga  en ofnar í herbergjum. Fallegt gegnheilt viðarparket er á gólfi.
Íbúð í risinu var gerð upp á bjartan og fallegan máta en þar er gólfflötur töluvert mikið stærri en birtir fermetrar sýna (nær 60 fm), enda stór hluti undir súð. Við endurnýjun á þaki ca 2016-17 voru settir nýir kvistir bæði til norðurs og suðurs sem stækka nýtanlegan gólfflöt verulega. Íbúðin er björt með eldhúsi, svefnherbergi, stofu/alrými og baðherbergi, gólf eru flotuð, auðvelt væri að skipta rýminu meira upp og fá annað herbergi.
Góð aðkoma er að húsinu, bílastæði á lóðinni tilheyra þessari íbúð. 
Réttur til byggingar bílskúrs tilheyrir þessum eignarhluta í húsinu. Fyrir liggja samþykktar teikningar og gatnagerðargjöld greidd. Búið er að leggja grunn tengingu lagnaf rá húsinu að nýbyggingunni.
Húsið sjálft hefur fengið mikið og gott viðhald undanfarin ár en þar má nefna;
Þak með nýjum kvistum, rennur og gluggar var endurnýjað á árunum 2016-17.
Húsið var endursteinað ca 2007-2010 
Skólplagnir og drenlagnir hafa verið endurnýjaðar búið að skipta um jarðveg í bílaplani fyrir framan húsið 2023.
Þetta er bæði glæsileg og eiguleg eign í hjarta Reykjavíkur, stutt í skóla og leikskóla, verslanir, þjónustu og veitingastaði.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali í síma 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
114.3 m2
Fjölbýlishús
322
945 þ.kr./m2
107.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
109 m2
Fjölbýlishús
322
954 þ.kr./m2
103.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
108.7 m2
Fjölbýlishús
322
947 þ.kr./m2
102.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin