Miklaborg kynnir: 245 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 58,9 fermetra tvöföldum bílskúr á 1.020,0 fermetra frágenginni lóð á eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ. Húsið hefur allt verið endurnýjað að innan og utan á árunum 2017-2025.-
Bókið skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með innbyggðum fataskápum, inn af forstofu er gestasnyrting með glugga. Í alrými eru samliggjandi stofur með útgengi á viðarverönd til suðurs og eldhús með sérsmíðuðum innréttingum og eyjukrók. Bjart rými, hátt til lofts og innfeld lýsing í loftum.
Á herbergisgangi er sér þvottaherbergi, baðherbergi, þrjú barnaherbergi, hjónasvíta, sjónvarpshol og opin vinnuaðstaða. Þvottaahúsið er með góðum innréttingum, vaski og opnanlegum glugga. Baðherbergið er með fallegri innréttingu með kvartsteini á borði, vegghengt wc, baðkari og stórri walk-in sturtu. Barnaherbergi eru öll rúmgóð með góðum fataskápum, heill skápaveggur í einu þeirra. Hjónasvítan er rúmgóð með fataherbergi og baðherbergi. Í fataherbergi eru fallegir sérsmíðaðir fataskápar. Baðherbergið er með walk-in sturtu og göngudyrum út á viðarverönd með heitum potti. Frammi á herbergisgangi er lítið sjónvarpshol og opin vinnuaðstaða með veggfastri borðplötu, stúkuð af með fallegum trérimlum.
Á herbergisgangi er hol með rúmgóðum skápum þar sem hægt er að ganga inn í bílskúr, eldvarnarhurð á milli. Bílskúrinn er tvöfaldur með rafrdrifnum bílskúrshurðum og epoxy á gólfum. Inn af honum er inntaksrými og geymsla. Lóðin, sem er 1.020,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin. Stór innkeyrsla með hitalögnum undir, hellulögð stétt meðfram innkeyrslu með hitalögnum undir, lokað kerfi með varmaskiptum. Stór viðarverönd með skjólveggjum og heitum potti, komnar undirstöður og lagnir fyrir geymsluskúr fyrir aftan verönd, tyrfð flöt og trjágróður. Stór hluti lóðarinnar er afgirtur með nýjum skjólvegg og þrefalt ruslatunnuskýli stendur á afgirtri hellulagðri verönd norðan við bílskúr.
Húsið hefur allt verið endurnýjað að innan sem utan á árunum 2017-2025.
- Húsið einangrað upp á nýtt og klætt með áli.
- Allt gler, gluggar og allar útihurðir endurnýjaðar.
- Þakjárn og þakpappi endurnýjað. Þakkantur álklæddur að framan. Nýjar álrennur og niðurföll.
- Lagnir fyrir skólp (út fyrir lóðarmörk), neysluvatn og rafmagn endurnýjaðar, forhitari fyrir neysluvatn, lagt gólfhitakerfi, skipt um inntök og töflur og grind endurnýjuð.
- Free at Home hússtjórnarkerfi fyrir lýsingu, hitastýringu og heitan pott.
- Öryggiskerfi frá Securitas.
- Rafhleðslustöð við bílskúr.
- Skipulagi hið innra breytt og byggð 42,0 fermetra viðbygging við húsið sem er að stórum hluta hjónasvíta með bað- og fataherbergi.
- Öll loft klædd upp á nýtt, aukin einangrun og ný rakasperra. Sett innfelld lýsing auk þess sem loftræstikerfi var sett í viðbyggingu með möguleika á að tengja við restina af húsinu. Öll loft og veggir heilsparslaðir.
- Baðherbergi endurnýjuð.
- Gestasnyrting endurnýjuð.
- Eldhús endurnýjað.
- Öll gólfefni, fataskápar og innihurðir endurnýjaðar.
- Allar innréttingar, að meðtöldum fataskápum, auk innihurða eru íslensk sérsmíði.
Staðsetning eignarinnar er góð á rólegum og eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 14/10/2016 | 60.550.000 kr. | 61.900.000 kr. | 203 m2 | 304.926 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 254 | 269 | ||
210 | 225,3 | 150 | ||
210 | 224,4 | 150 | ||
225 | 217,6 | 164,9 | ||
210 | 215,7 | 184,9 | ||
102 | 250 | 229 |