Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Vorbraut 10 (404) Þakíbúð

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
161.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.000.000 kr.
Fermetraverð
1.110.422 kr./m2
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2543465
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 4ra herbergja þakíbúð við Vorbraut 10 í Garðabæ með tveimur bílastæðum í bílakjallara, rúmgóðu alrými, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö auka svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað inn af hjónasvítu), þvottaherbergi og 30,4 fermetra þaksvalir til suðurs og vesturs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.vorbraut8-12.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Vorbraut 12 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. 

Íbúð 404: Er glæsileg 161,2 fermetra 4ra herbergja þakíbúð á 4. hæð með þaksvölum til suðurs og vesturs. Tvö sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja íbúðinni. Stór geymsla fylgir íbúðinni sem er 15,1 fermetri að stærð. Afhending er í febrúar eða mars 2027 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í rúmgóðu alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi (þar af hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi), tvö baðherbergi (annað inn af hjónasvítu) og þvottaherbergi. Útgengi á stórar 30,4 fermetra þaksvalir sem snúa til suðurs og vestrs.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.vorbraut8-12.is

Vorbraut stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Vorbraut býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn. Til suðurs er golfvöllur GKG, Leirdalsvöllur sem er glæsilegur 18 holu völlur. Spottakorn lengra er Vífilstaðavatn og Heiðmörkin með óteljandi hjóla- og göngustígum. Til norðurs er Smáralind ásamt verslunarkjörnum í Lindum og á Dalvegi. Þá er Garðatorg alltaf vinsælt meðal Garðbæinga þar sem eru skemmtilegir veitingastaðir og ýmis þjónusta.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar:
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Arens innréttingar (Ormsson). Innréttingar eru í dökku viðarútliti. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Neðri skápar á baðherbergjum eru með skúffu og efri skápar eru með spegli.

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði (innbyggð vifta í helluborði þar sem eldhúseyjur eru), innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu (ef er ekki eldhúseyja).

Hreinlætistæki: Salernisskál (Grohe) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Handlaugar eru ýmist frá Roca eða Valadares. Blöndunartæki eru hitastýrð frá Grohe. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2543465
Byggingarefni
Steypt
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2543465
Byggingarefni
Steypt

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kópavogsbraut 4
Opið hús:26. sept. kl 12:45-13:15
Skoða eignina Kópavogsbraut 4
Kópavogsbraut 4
200 Kópavogur
155.5 m2
Parhús
524
868 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Efsta hæð
Opið hús:23. sept. kl 12:00-12:20
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
413
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 22A
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Laus við Kaupsamning
Álfhólsvegur 22A
200 Kópavogur
126.4 m2
Fjölbýlishús
413
854 þ.kr./m2
108.000.000 kr.
Skoða eignina Berghólar 16
Bílskúr
Opið hús:23. sept. kl 17:00-17:40
Skoða eignina Berghólar 16
Berghólar 16
800 Selfoss
161.6 m2
Parhús
413
569 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin