Lind fasteignasala og Arinbjörn Marinósson lgf kynna eignina Mosgata 7, 210 Garðabæ sem er virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2018. Eignin skiptist í 104,7 fm íbúð með þvottahúsi innan íbúðar, góðum svölum og 6,5 fm sér geymslu í sameign, samtals 111,2 fm. Vandaðar HTH innréttingar og skápar ásamt vönduðum heimilistækjum. Eignin samanstendur af anddyri, þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali, í síma 822-8574, tölvupóstur arinbjorn@fastlind.is.
Nánari lýsing:
Anddyri: Frá sameign er komið í rúmgott anddyri. Fatahengi og innbyggður fataskápur. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið var tekið í gegn í Maí 2026. Skipt var um innréttingu, blöndunartæki og settur speglaskápur. Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn og góð innrétting.
Þvottahús: Þvottahús með innréttingu fyrir þottavél og þurrkara. Ræstivaskur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð HTH elhúsinnrétting með góðri eyju. Tæki frá AEG og Electrolux. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Rúmgott alrými með stórum gluggum og útgengi á mjög rúmgóðar svalir. Parket á gólfi
Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Gott herbergi sem nýtist vel. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Gott herbergi sem nýtist vel. Innbyggður fataskápur. Parket á gólfi.
Svalir: Frá stofu er gengið út á rúmgóðar ca 13 fm svalir.
Geymsla: Í sameign er sér 6,5 fm geymsla.
Lóð: Vel hirt lóð í sameign.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg íbúð í vönduðu nýlegu fjölbýli staðsett örstutt frá útivistarperlu.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.