Fasteignaleitin
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Skráð 9. júní 2026

Borgarvegur 11

HæðSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
133.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
514.563 kr./m2
Fasteignamat
58.050.000 kr.
Brunabótamat
60.150.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2092937
Landnúmer
129255
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Seljandi er ekki viss
Raflagnir
Hafa verið endurnýjaðar samkvæmt seljanda
Frárennslislagnir
Seljandi er ekki viss
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta samkvæmt seljanda
Þak
Járn á þaki endurnýjað samkvæmt seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
út af stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Nokkrir gluggar eru komnir á tíma.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu: Borgarveg 11, 260 Reykjanesbær. Rúmgóð og björt eign sem samanstendur af stóru anddyri, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi, stofu og borðstofu. Eignin er skráð 133,9 m2.  

Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is
Jóna Björg Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.is.
 
* Járn á þaki endurnýjað í kringum 2017
* Hluti af gluggum hafa verið endurnýjaðir
* Baðherbergi endurnýjað í kringum 2018 
* Rafmagn hefur verið endurnýjað
* Svalir ný múraðar
* Innkeyrsla fylgir
 
Nánri lýsing:

Anddyri: Lítið anddyri er við inngang en mjög stórt uppá stigapalli. Þar er harðparket á gólfi. Stigi er teppalagður. 
Forstofuherbergi: Rúmgott, harðparket á gólfi og fataskápur. 
Eldhús: Harðparket á gólfi, eldri eikar innrétting með ljósri borðplötu. Borðkrókur. 
Baðherbergi: Gráar flísar á gólfi og votrými. Upphengt salerni og hvítur vaskaskápur og hringspegill fyrir ofan. Walk in sturta.
Hjónaherbergi:  Rúmgott með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi. Innbygður, eldri fataskápur. 
Þvottahús: Með góðri hvítri, nýlegri innréttingu sem rúmar bæði þvottavél og þurrkara. Steypt gólf. 
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt. Harðparket á gólfi. Gengið er útá rúmgóðar svalir.
Garður er sameiginlegur.

Notarleg efri hæð á mjög vinsælum stað í göngufæri við Njarðvíkuskóla, kjörbúð og matsölustað. Einnig er mjög stutt í aðra þjónustu og stærri verslanir. 

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/07/201927.050.000 kr.37.000.000 kr.133.9 m2276.325 kr.
11/11/201415.350.000 kr.16.000.000 kr.133.9 m2119.492 kr.Nei
02/03/200714.450.000 kr.19.500.000 kr.133.9 m2145.631 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reynidalur 3
Skoða eignina Reynidalur 3
Reynidalur 3
260 Reykjanesbær
97.9 m2
Fjölbýlishús
313
644 þ.kr./m2
63.000.000 kr.
Skoða eignina Engjavellir 5A
Opið hús:10. júní kl 17:00-17:20
Skoða eignina Engjavellir 5A
Engjavellir 5A
221 Hafnarfjörður
87 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Leikskálar 4
Bílskúr
Skoða eignina Leikskálar 4
Leikskálar 4
850 Hella
192.6 m2
Einbýlishús
513
389 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Merkigerði 21
Bílskúr
Skoða eignina Merkigerði 21
Merkigerði 21
300 Akranes
151.1 m2
Fjölbýlishús
413
516 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin