Fasteignaleitin
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 22. júní 2026

Orkureitur - D1-510

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
126.5 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
1.184.980 kr./m2
5. hæð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
253629711
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni!
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Gólfhiti er í öllum íbúðum sem og aukin lofthæð.
SAFÍR20 er fjármögnunarleið sem getur hentað vel til að binda minna eigið fé í húseign, lækka lántöku og greiðslubyrði. Tryggðu þér góða íbúð með skynsamlegri fjárfestingu og lægri greiðslubyrði á mánuði. Sjá nánar inná www.safir20.is


Orkureitur - D1-510, íbúð 05-10 er 4ra herbergja, 126.5 fm íbúð.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali í síma 899-8815, kari@eignamidlun.is

Smellið hér til að skoða heimasíðu verkefnisins Orkureiturinn.is
*** Sækja söluyfirlit ***

Orkureitur - D1-510 , íbúð 05-10 er 126.5 fm 4ra herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. 
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 126.5 fm með sérgeymslu í kjallara hússins. 
Innréttingaþema er Safír harmónía (500). Val þegar kemur að innréttingum og frágangi. Fimm innréttingaþemu frá Nobilia (Lser). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 
Afhending íbúðanna: Íbúðir í D1 eru tilbúnar til afhendingar. Gert er ráð fyrir að íbúðir í D2 verði til afhendingar í júní/júlí 2026. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8 (410)
IMG_6740.JPG
Krummahólar 8 (410)
111 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
567 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Lindasmári 37
Skoða eignina Lindasmári 37
Lindasmári 37
201 Kópavogur
109.2 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin