Hraunhamar kynnir fallega 6-7 herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt bílskúr vel staðsett í Norðurbæ Hafnarfjarðar
Íbúðin er 108,5 fermetrar, geymsla með gluggum, innangengt úr íbúðinni. 36,5 fermetrar. Íbúðarhlutinn er 145 fermetrar.
Bílskúr 24,5 fermetrar og geymsla 6,7 fermetrar, einnig á íbúðin sérgeymslupláss í sameiginlegri geymslu.
Samtals er séreignahluti íbúðar 176,2 fermetrar. Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, fimm svefnherbergi, stofa, sjónvarpshol, eldhús með borðkróki, þvottahús, baðherbergi, geymsla og bílskúr auk reglubundinnar sameignar.
Nánari lýsing eignarinnar:Forstofa með fataskápum.
Gott hol,
Eldhús með smekklegri innréttingu, stór gaseldavél.
Inn af eldhúsinu er
þvottahús. Björt
stofa og þaðan er utangengt út á
suð-vestur svalir.Sjónvarpshol, þar væri auðvelt að koma fyrir herbergi.
Svefnherbergisgangur: tvö
barnaherbergi og gott
hjónaherbergi með fataskápum.
Fallegt
baðherbergi með upphendu salerni, baðkar og þar er sturtuaðstaða. fín innrétting.
Úr holinu er innangengt með hringstiga niður á neðri hæðina, þar er opið 36,5 fermetra rými, sem býður upp á ýmsa möguleika.
Væri auðveldlega hægt að stúka niður í tvö herbergi e.t.v. Einnig er inngangur í rýmið úr sameigninni.
Gólfefni er harðparket og flísar.
Sérgeymsla í sameign, bílskúr með sjálfvirkum bílskúrsopnara.
Nýlega búið að mála húsið að utan og yfirfara glugga.
Þetta er skemmtileg eign sem býður upp á ýmsa möguleika.
Stutt í skóla og leikskóla og verslanir í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.isSkoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is