Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallegt og rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og skjólgóðum garði á eftirsóttum og grónum stað í Smárahverfi. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða fimm til sex herbergja eign sem hefur fengið töluverðar endurbætur og gott viðhald. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu og borðstofu, sólstofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, rúmgott sjónvarpshol á efri hæð og innbyggðan bílskúr. Frá sólstofu er útgengt á afgirta verönd og í stóran, skjólgóðan garð sem snýr vel til sólar. Efri hæð er að hluta undir súð, nýtanlegir fermetrar eru því fleiri en skráðir fermetrar gefa til kynna. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í síma 856-5858 eða á margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar skv.fasteignaskrá HMS er 183,8 m² og skiptist í 161,0 m² íbúð og 22,8 m² bílskúr. Neðri hæð er 94,5 m² og efri hæð 66,5 m².Vel staðsett endaraðhús á fjölskylduvænum stað í Smárahverfi. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, meðal annars Smáratorg og Smáralind. Leik- og grunnskólar eru í nágrenninu, auk íþróttaaðstöðu Breiðabliks og fjölbreyttra útivistarmöguleika í Kópavogsdal. Gott aðgengi er að almenningssamgöngum og stofnbrautum.
Lýsing eignar:Neðri hæð - skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu/borðstofu, sólstofu og hjónaherbergi.Anddyri/forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Hol tengir saman rými neðri hæðar og þaðan er stigi upp á efri hæð.
Eldhús er bjart með gluggum til vesturs og norðurs. Eldhúsinnrétting með nýlegum framhliðum, keramikhelluborði og flísum á milli innréttinga.
Þvottahús er inn af eldhúsi og nýtist einnig sem búr.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa, snyrtilegri innréttingu við vask, salerni og glugga með opnanlegu fagi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu rými með vinyl parketi á gólfi. Falleg viðarklæðning á vegg setur svip sinn á rýmið. Frá stofu er gengið inn í sólstofu.
Sólstofa er björt og rúmgóð með flísum á gólfi og gólfhita. Flísar og allt gler í sólstofunni hafa verið endurnýjuð. Frá sólstofu er útgengt á afgirta verönd og í skjólgóðan garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýjum opnum fataskápum.
Gólfefni: Vinyl parket á öllum rýmum nema í forstofu, baðherbergi og sólstofu, en þar eru flísar.
Efri hæð - skiptist í gott alrými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Hæðin er að hluta undir súð, nýtanlegt fermetrar því fleiri en skráðir fermetrar.Hol/alrými er bjart og rúmgott með mikilli lofthæð og nýtist vel sem sjónvarpshol. Möguleiki að útbúa fjórða svefnherbergið á efri hæð og minnka sjónvarpshol.
Svefnherbergi (II & III) tvö
rúmgóð barnaherbergi með parket á gólfi. Góður gluggi til norðurs í báðum herbergjum.
Svefnherbergi (IV) er rúmgott herbergi með þakglugga. Skráð geymsla skv, teikningu en hefur verið innréttað sem svefnherbergi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að miklu leyti með nýrri sturtu, baðinnréttingu og blöndunartækjum frá Tengi og nýjum flísum á gólfi og veggju að hluta.
Geymsla, skriðloft undir súð sem nýtist til geymslu.
Gólfefni: Viðarparket á öllum rýmum nema baðherbergi, en þar eru flísar.
Bílskúr: Innbyggður 22,8 m² bílskúr með flísalögðu gólfi.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉREndurbætur og viðhald að sögn seljanda:- Gólfefni (Vinyl parket) og innihurðir á neðri hæð endurnýjuð, frá Birgisson.
- Nýir fataskápar settir upp í hjónaherbergi.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð með nýjum framhliðum.
- Baðherbergi á efri hæð endurnýjað að miklu leyti, með nýrri sturtu, innréttingu og blöndunartækjum.
- Flísar og allt gler í sólstofu endurnýjað og gólfhiti lagður.
- Lóð vestan megin húss endurnýjuð árið 2022.
Lóð og útisvæðiVið húsið er gróinn og afgirtur garður sem býður upp á gott næði og skjól. Tveir skjólgóðir sólpallar eru við húsið, annar til austurs og hinn til vesturs, sem gefur góða möguleika á að njóta sólar yfir daginn. Aðkoma að húsinu er snyrtileg með hellulagðri stétt og snjóbræðslukerfi. Upphitað bílaplan rúmar tvo bíla.
Fallegt og rúmgott endaraðhús á eftirsóttum stað í Smárahverfi þar sem fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, björt sólstofa, innbyggður bílskúr og skjólgóður garður eru meðal helstu kosta eignarinnar.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is.
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.