Eignamiðlun kynnir:
Stórglæsilegt og mikið endurnýjað raðhús ásamt bílskúr á eftirsóttum stað í Fossvoginum. Húsið er 178,80 fm og bílskúrinn 20,90 fm, samtals 199,70 fm. Húsið er mjög vel staðsett innan hverfisins, stutt í leikskóla og skóla. Suðursvalir og suðurgarður. Garðurinn er snyrtilegur með timburverönd og heitum potti.
Nánari lýsing:
Upphitaður og upplýstur stígur liggur frá götu að inngangi. Tröppur við aðalinngang voru steyptar og múrviðgerðar fyrir um þremur árum og jafnframt var komið fyrir rafhitun.
Mið- og efri pallur:Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er herbergi með nýlegum fataskápum. Gestasnyrting er einnig inn af forstofu. Snyrtingin var standsett árið 2013 og er snyrtileg, með flísum á gólfi og viðarinnréttingu. Lítið fataherbergi fyrir yfirhafnir og skó er við forstofu.
Úr forstofu er gengið inn í hol sem er opið við borðstofu og tengist eldhúsi. Í eldhúsi er mikið skápa- og vinnupláss. Innrétting og tæki voru endurnýjuð árið 2017. Eldhúsið er vel skipulagt með miklu skápaplássi, ofni í vinnuhæð, tækjaskápur og innbyggðum ísskáp öðrum megin og góðu vinnuplássi hinum megin. Í innréttingu er undirlímmdur vaskur, 90 cm spanhelluborð og innbyggð uppþvottavél.
Borðstofan er rúmgóð og með góðri tengingu bæði við eldhús og stofu á efri palli.
Gengið er upp nokkur þrep í stóra setustofu. Gluggar eru eftir endilangri suðurhlið og út frá stofunni eru svalir sem ná meðfram allri stofunni. Mikil lofthæð er í borðstofu og setustofu og glæsilegt útsýni.
Neðri pallar:Gengið er niður teppalagðan stiga út frá holi og komið niður á jarðhæð.
Snyrtilegt baðherbergi sem var endurnýjað árið 2013. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. Þar er vegghengt salerni, viðarinnrétting og rúmgóð sturta. Gólfhiti.
Mjög rúmgott svefnherbergi sem áður var tvö herbergi en hefur verið sameinað í eitt. Herbergið er með fataskáp og tveimur gluggum til suðurs.
Rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskápum. Rennihurð leiðir út í garð þar sem byggður var stór og rúmgóður sólpallur árið 2020. Sama ár var settur upp heitur pottur og útisturta. Vel hirtur garður.
Á neðsta palli er rúmgott hol sem gæti nýst sem svefnherbergi, sjónvarpshol og fleira. Þar er einnig rúmgott svefnherbergi með innbyggðum fataskápum.
Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi. Innréttingar og lýsing voru endurnýjaðar á þessu ári. Hitalögn er í hluta gólfsins. Hægt væri að breyta þvottahúsinu í baðherbergi en lagnir og frárennsli fyrir salerni og sturtu eru þegar til staðar. Út frá þvottahúsinu er einnig útidyrahurð með útgengi að götu.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað að utan:Skipt var um þakjárn, þakpappa, sauma og aðfellur árið 2008. Á árinu 2025 var þakið málað og yfirfarið. Þak- og affallsrennur voru endurnýjaðar árið 2025. Sama ár voru kláraðar steypuviðgerðir á austur- og vesturgöflum, þeir málaðir og settar nýjar ál-áfellur yfir þakkanta.
Svalaveggir voru brotnir niður, endurbyggðir, múraðir og málaðir á síðasta ári.
Öllum gluggum og gluggaumbúnaði á suðurhlið, sem er áveðurs, var skipt út fyrir nýja árið 2016. Þá var einnig sett ný svalahurð og rennihurð úr svefnherbergi út í garð. Útihurð við aðalinngang var pússuð upp og lökkuð á þessu ári.
Gólf voru opnuð og nýjar frárennslislagnir lagðar alla leið út í brunn árið 2013.
Bílskúr í lengju fylgir húsinu. Í bílskúr er hitaveituofn, kalt vatn og rafmagn. Loft hefur verið einangrað. Bílskúrshurð var endurnýjuð árið 2012. Einkastæði er við bílskúrinn fyrir Geitland 39 og er það með tengi fyrir rafhleðslu. Nýlega hefur verið lokið við steypu- og múrviðgerðir á bílskúrslengjunni.
Gott tækifæri til að eignast vel við haldið og mikið endurnýjað hús á rólegum og eftirsóttum stað í Fossvoginum.Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 588-9090 eða sverrir@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook