Fasteignaleitin
Skráð 16. júní 2026

Vorbraut 12 (112)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
102.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
850.294 kr./m2
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2543437
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
12
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 3ja herbergja íbúð við Vorbraut 12 í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, rúmgóðu alrými, þvottaherbergi og svölum með svalalokun ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.vorbraut8-12.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Vorbraut 12 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. 

Íbúð 112: Er glæsileg 102,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með 7,2 fermetra svölum með svalalokun og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Stór geymsla fylgir íbúðinni sem er 15,0 fermetrar að stærð. Afhending er í nóvember 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir með svalalokun frá stofu og er sérmerkt stæði í bílakjallara.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.vorbraut8-12.is

Vorbraut stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Vorbraut býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn. Til suðurs er golfvöllur GKG, Leirdalsvöllur sem er glæsilegur 18 holu völlur. Spottakorn lengra er Vífilstaðavatn og Heiðmörkin með óteljandi hjóla- og göngustígum. Til norðurs er Smáralind ásamt verslunarkjörnum í Lindum og á Dalvegi. Þá er Garðatorg alltaf vinsælt meðal Garðbæinga þar sem eru skemmtilegir veitingastaðir og ýmis þjónusta.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Arens innréttingar (Ormsson). Innréttingar eru í dökku viðarútliti. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Neðri skápar á baðherbergjum eru með skúffu og efri skápar eru með spegli.

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði (innbyggð vifta í helluborði þar sem eldhúseyjur eru), innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu (ef er ekki eldhúseyja).

Hreinlætistæki: Salernisskál (Grohe) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Handlaugar eru ýmist frá Roca eða Valadares. Blöndunartæki eru hitastýrð frá Grohe. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2543437
Byggingarefni
Steypt

Myndir (7)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 12 (406) Þakíbúð
Bílastæði
Vorbraut 12 (406) Þakíbúð
210 Garðabær
180.4 m2
Fjölbýlishús
423
1020 þ.kr./m2
184.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 12 (405) Þakíbúð
Bílastæði
Vorbraut 12 (405) Þakíbúð
210 Garðabær
174.3 m2
Fjölbýlishús
412
1010 þ.kr./m2
176.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 12 (312)
Bílastæði
Vorbraut 12 (312)
210 Garðabær
123.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 12 (311)
Bílastæði
Vorbraut 12 (311)
210 Garðabær
120.9 m2
Fjölbýlishús
412
826 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin