LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson lgfs kynna Nesbala 20 Seltjarnarnesi.
Lýsing:
• Fallegt og vel skipulagt 202,0 fm raðhús á tveimur hæðum með bílskúr, á 482,0 fm eignalóð.
• Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum og skiptist í forstofu, stórt alrými, opið eldhús, borðstofu og stofu, 5 svefnherbergi, tvö baðherbergi, bar og um 30 fm óskráð afþreyingarrými.
• Á efri hæð eru stórar suðvestur-svalir og á neðri hæð er mjög stór og skjólgóð viðarverönd sem þekur allan garðinn, með heitum potti og geymsluskúr.
• Bílskúr er 58,0 fm.
• Einstaklega fallegt fjölskylduhús á eftirsóttum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, verslanir, útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir.
Nánari lýsing – Neðri hæð:
Forstofa: Forstofa er flísalögð með vönduðum flísum frá Ebson og með gólfhita. Þaðan er gengið inn í opið alrými, einnig með gólfhita.
Baðherbergi: Baðherbergi er nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Hvít vaskinnrétting með speglaskáp, handklæðaofn, upphengt salerni og sturta með smásteinaflísum í botni.
Svefnherbergi: Svefnherbergi á neðri hæð eru tvö; annað er rúmgott og bjart með parketi, hitt með kókosteppi.
Bar- og afþreyingarrými: Bar- og afþreyingarrými er í sólskála – óskráð, tæpl. 30 fm rými með miklum möguleikum. Barborð og skápar voru nýlega sett upp og vandað kókosteppi á gólfum. Útgengt er út á stóra og skjólgóða viðarverönd með heitum potti og geymsluskúr.
Bílskúr og þvottahús: Innangengt er í 58 fm bílskúr með sjálfvirkri hurð. Þar er jafnframt þvottahús með góðum innréttingum. Bílskúr hefur verið nýttur sem geymslu- og æfingarrými.
Nánari lýsing – Efri hæð:
Eldhús: Eldhús er rúmgott og bjart, flísalagt með hvítum innréttingum, góðu skápaplássi og flísum á milli skápa. Bökunarofn er í vinnuhæð. Undir flísum er fræst fyrir gólfhita og er lagnakerfið tilbúið til tengingar.
Stofa og borðstofa: Opið er inn í borðstofu og stofu með útgengi á stórar suðvestur-svalir.
Svefnherbergi: Við stiga er opið rými og gangur sem leiðir að þremur svefnherbergjum.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fallegum hljóðeinangrandi panel frá Ebson á vegg.
Baðherbergi: Baðherbergi er að mestu upprunalegt, flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, hvítri vaskinnréttingu, speglaskáp og stórum opnanlegum glugga.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is
Endurbætur síðustu ára:
2025
• Hús málað að utan að stórum hluta.
• Klætt og einangrað að utan við hurð út í garð.
• Þakrenna og niðurfall endurnýjað að aftan.
• Þakkant skipt út að hluta og málaður.
• Bílskúrshurð, ruslageymsla og beð málað.
• Geymsla á palli máluð.
2024
• Fataskápar endurnýjaðir í forstofu og flestum herbergjum.
• Hurðum á efri hæð skipt út (Birgisson).
• Teppi lagt á stiga.
• Bílskúr málaður og settur upp að hluta sem líkamsrækt.
2023
• Loft tekið niður og rafmagn endurnýjað í stofu, eldhúsi og stigagangi.
• Innfelld lýsing sett.
• Rafmagnstöflur yfirfarðar og endurnýjaðar að stórum hluta.
• Parket endurnýjað á efri hæð.
• Hús málað að innan.
• Ný tvískipt hurð út á verönd og geymsluskúr settur upp.
2021–2022
• Parket lagt á neðri hæð.
• Gólfhiti settur í forstofu og hol.
• Húsið málað.
• Ný rennihurð milli hols og sólskála.
• Innihurðir endurnýjaðar á neðri hæð.
• Miðstöð lagna endurnýjuð.
2017
• Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað.
• Bar og kókosteppi sett í afþreyingarrými.
• Pallur smíðaður og heitur pottur settur upp.
• Rafmagnstenglum skipt út að mestu.
2016
• Allir gluggar og svalarhurð endurnýjuð.
• Nýjar lagnir í eldhúsi og frárennslislagnir endurnýjaðar.
Athugið: Skipulagi neðri hæðar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum, m.a. með viðbót á sólskála.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,