Hlíðarvegur, sérhæð, 200 Kópavogur. Fasteignaland kynnir.: Hlíðarveg 27 í suðurhlíðum Kópavogs. Um er ræða 114,2 fm sérhæð samkvæmt Fasteignayfirliti. Eignin er á annari hæð í fjórbýli og fylgja tvö bílastæði með eigninni. Eignin var endurnýjuð að innan að hluta fyrir nokkrum árum.
Lýsing á eign: Sér inngangur er á jarðhæð hússins. Komið er inn í teppalagðan gang með góðu skápaplássi. Gengið upp stiga upp á parketlagðan pall. Herbergisgangur er parketlagður. Tvö herbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi, annað með útgengi út á norður svalir. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og sturtu. Þvottahús er með flísum á gólfi, fallegri grárri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur. Stofan og eldhúsið er í sama rými með parketi á gólfi. Eldhúsið er með fallegri hvítri viðarinnréttingu með ofni, keramik helluborði. Úr stofu er gengið út á suður svalir sem eru tvískiptar. Annar hlutinn er yfirbyggður og flísalagður með hita í gólfi.
Gott malbikað bílaplan er framan við húsið og fylgja tvö stæði eigninni.
Þetta er falleg og vel um gengin eign í suðurhlíðum Kópavogs þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslun og aðra þjónustu.
Upplýsingar gefa: Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang:
arni@fasteignaland.isHeimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is