Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Sunnusmári 13 (301)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
142.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
727.591 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Guðmundur Hallgrímsson
Guðmundur Hallgrímsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 2023
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2520795_44
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
9
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
4 - Fokheld bygging
***BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ SÖLUMÖNNUM***

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 9 - 13 í Kópavogi. 69 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.


Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.

Íbúð 301: Er glæsileg 4ra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum, fataherbergi og þvottaherbergi. Heildarstærð er 142,8 fermetrar og er staðsett á þriðju hæð. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 16,2 fermetra geymsla. Svalir eru 7,1 fermetrar að stærð. Afhending er áætluð í desember 2023 - janúar 2024 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing hér neðar.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: Sölusíða - Sunnusmári 9-13

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS



Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, fataherbergi, 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 7,1 fermetra svalir úr stofu. 

Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergin: Eru þrjú talsins með fataskápum frá GKS. Fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi.
Stofa: Með gluggum á tvö vegu og rúmar setustofu/borðstofu. Opin við eldhús.
Svalir: Eru 7,1 fermetrar að stærð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Eyjuháfur yfir eyju).
Baðherbergi: Eru tvö talsins. Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.
Sérstæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Ýmist með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með ljósum innréttingum. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2520795
Byggingarefni
Steypt

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 6 208 SÝNUM SAMDÆGURS
Bílastæði
Opið hús:19. sept. kl 17:00-17:30
Silfursmári 6 208 SÝNUM SAMDÆGURS
201 Kópavogur
124.4 m2
Fjölbýlishús
312
771 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 6 309 SÝNUM SAMDÆGURS
Bílastæði
Opið hús:19. sept. kl 17:00-17:30
Silfursmári 6 309 SÝNUM SAMDÆGURS
201 Kópavogur
132 m2
Fjölbýlishús
312
749 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Fífulind 13
Opið hús:23. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Fífulind 13
Fífulind 13
201 Kópavogur
145.3 m2
Fjölbýlishús
614
660 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Álalind 8
Bílastæði
Skoða eignina Álalind 8
Álalind 8
201 Kópavogur
123 m2
Fjölbýlishús
413
788 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin