SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLI Í GÖNGUFÆRI VIÐ PUNTA PRIMA STRÖNDINA* *GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *BÍLSKÚR* *TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR*Vandað einbýli á 2 hæðum á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Aðeins nokkur skref á ströndina. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast fullbúið nýtt hús við sjóinn.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869,
Nánari lýsing:Um er að ræða glæsilegt 5ra herb. einbýli með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum rétt við Punta Prima ströndina. Rúmgóð stofa/borðstofa/alrými og vandað eldhús. Bílskúr í kjallara og þvottahús/geymsla. Góður garður umhverfis húsið með einkasundlaug og góðri aðstöðu til að njóta sólar og samveru allt árið um kring. Að auki eru góðar svalir og rúmlega 50 fm þaksvalir sem eykur enn frekar möguleika til útiveru.
Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard, glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýtt og vandað einbýli á frábærum stað, sem tilbúið er til afhendingar.
Verð: 699.900 Evrur (101.500.000ISK - gengi 1Evra=145ISK) + kostn. við kaupin.Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: strönd, útsýni, einkasundlaug, bílskúr, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,